Skinfaxi - 01.02.1981, Qupperneq 29
í tilefni þess að Guðmundur
Guðmundsson lét nýlega af störl-
um sem skólastjóri Félagsmála-
skóla UMFÍ átti Skinfaxi viðtal
við hann.
Guðmundur, hvenær hófstu
að vinna fyrir skólann?
Eg kenni mitt fyrsta námskeið
við skólann '12 og hcf kennt við
hann af og til síðan.
Þegar Félagsmálaskólinn var
stofnaður 1970 var stjórn UMFI
jafnframt skólanefndin. Haustið
’78 er gerð breyting á þessu og sett
5 manna skólanefnd og var ég
skipaður formaður hennar og
jafnframt skólastjóri skólans.
Nefndinni var m.a. falið að end-
urskoða reglugerð skólans. Ný
reglugerð var santin og lögð lyrir
þing UMFI að Stórutjarnaskóla
’79. Þá var gerð sú breyting að
fækkað var í nefndinni í 3 menn.
Hver er ástæðan fyrir því að
þú lætur af störfum?
I haust var farið þess á leit við
mig að ég yrði formaður Æsku-
lýðsráðs ríkisins. Eg sló til en þar
sem ég taldi ekki rétt að vara bæði
skólastjóri Félagsmálaskólans og
formaður ÆRR ákvað ég að hætta
sem skólastjóri skólans.
Hvert er hlutverk ÆRR?
Hlutverk ráðsins er í stuttu
máli að skipuleggja opinberan
stuðning við æskulýðsstarf í land-
inu, og leitast við að samræma og
stuðla að samvinnu þeirra lélaga-
samtaka svo og annara aðila sem
sinna þessum málum. Þá á ráðið
að efna til ráðstefnu um æsku-
lýðsmál og fylgjast með þróun
þeirra bæði hér heima og erlendis.
Að hvaða þáttum vinnur ráð-
ið einkum?
Það eru einkum þrír þættir sent
ráðið vinnur að. í fyrsta lagi má
nefna upplýsinga og gagnasöfnun
um æskulýðsstarf. Þa stendur ráð-
ið fyrir ráðstefnum um samstarf
og samræmingu þeirra er vinna
að æskulýsmálum. Og í þriðja lagi
að veita stuðning við félagsmála-
Iræðslu og standa fyrir þjálfun
leiðbeinenda.
Hvemig er samvinnu ÆRR
og Félagsmálaskóla UMFÍ
háttað?
ÆRR markaði sér þá stefnu í
upphafl að standa ekki fyrir mik-
illi starfsemi sjálft, heldur styðja
við bakið á þeim aðilum er sinna
æskulýðsstarfi. A þeim 10 árurn
sem liðin eru frá því að ráðið var
sett á laggirnar hefur samstarf
ÆRR og skólans verið mikið og
gott. ÆRR annast útgáfu á náms-
efni og stendur fyrir leiðbeinenda-
menntun. Eintiig styrkir ráöið fél-
agsmálanámskeið hjá æskulýð-
félögum, en Félagsmálaskóli
UMFÍ hefur haldið langllest
námskeiðin.
Einnig er mikið samstarf á milli
UMFÍ og ÆRR um ýmsa aðra
þætti, þá má nefna, að alltaf hefur
ungmennafélagi átt sæti í ráðinu.
Hver eru að þínu mati brýn-
ustu verkefnin framundan hjá
Félagsmálaskólanum?
Akveðin landsvæði hafa orðið
útundan h\ að varðar félagsmála-
fræðslu og er brýnt að koma á
námskeiðum þar.
Þá þarf að endurvinna upp
spjaldskrá urn öll þau námskeið
sem Félagsmálaskólinn helur
haldið. Einnig þarf að útbúa að-
gengilega og þægilega handbók
fyrir kennara skólans. Gott væri
að skólinn gæti boðið upp á stutt
námskeið um Ungmennafélags-
hreyfinguna sent víðast, þ.e.a.s.
um uppruna, hlutverk og starf-
semi hennar svo eitthvað sé nefnt.
Skinfaxi þakkar Guðmundi
spjallið og óskar honum velfarn-
aðar í liinu nýja starli og þakkar
fyrir vel unnin störf í þágu skólans
á undan lörnum árum.
Diðrik Haraldsson liefur tekið
við skólastjórastöðunni af Guð-
mundi. Diðrik þarf varla að
kynna fyrir lesendum Skinfaxa
þar sem hann var útgáfustjóri
blaðsins á síðasl liðnu ári. Auk
þess situr hann í stjórn og Fram-
kvæmdastjórn U.MFI. Einnig
hefur hann verið í skólanefnd Fél-
agsmálaskólans í rúm 2 ár. Skóla-
nefndina skipa núna auk Diðriks,
Finnur Ingólfsson, US\’S og
Gissur Pétursson, UMSK.
Skinfaxi óskar skólancfndinni
góðs gengis í li amtíðinni.
SP.
Viðtal við
Guomund Guðmutndsson
SKINFAXI
29