Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1984, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.06.1984, Blaðsíða 11
Landsmótsspá — Landsmótsspá Auöunn Eiríksson Spáir í úrslit sundkeppninnar á Landsmótinu Þegar ég tók að mér að spá um úrslit í sundinu á Landsmótinu nú í sumar taldi ég það vera létt verk og löðurmannlegt. En þegar ég fór að vinna í þessu áttaði ég mig á því að margir óvissuþættir geta sett spána úr öllum skorðum. Mörg lið úti á landi eru í uppsigl- 'ngu svo sem Borgarnes, Hvammstangi o.fl. Veit ég ósköp Htið um framgang þessara félaga. Önnur lið virðast dottin út úr myndinni en gætu þó vaknað aft- ur til lífsins, svona rétt fyrir Landsmótið. ^crgnús Ólafsson Eins er ómögulegt að segja til um hvaða greinar keppendur velja sér. Ég studdist fyrst og fremst við árangur einstaklinga frá síðastliðnu ári svo og íslands- mótið í mars síðastliðnum. Þessi spá er fyrst og fremst til gamans gerð og er því alger óþarfi að gera nokkuð veður út af henni. Örugglega eru það margir sund- kappar sem ég hef ekki tekið með í dæmið, en ættu það þó fyllilega skilið og ég vona bara að þeir taki það ekki óstinnt upp. Fyrst skul- um við líta á karlagreinarnar. Hugi Haröarson 100 m skriðsund Ég held að það verði mikil bar- átta um efstu sætin og nokkuð erfitt að segja nákvæmlega til um sigurvegarann. Ég spái samt: 1. Magnús Ólafsson HSK 2. Svanur Ingvarsson HSK 3. Þröstur Ingvarsson HSK 800 m skriðsund Það er ekki hægt að segja til með nokkurri vissu um úrslitin því fáir hafa synt þessa vegalengd Þóröur Óskarsson SKINFAXI 23

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.