Skinfaxi - 01.06.1984, Side 30
Landsmótsspá — Landsmótsspá
Handknattleikur
á 18. Landsmóti
UMFÍ.
Sveinn Pálsson.
Keppni í handknattleik á 18.
Landsmóti UMFÍ, kemur til með
að verða jöfn og skemmtileg og er
skemmst að minnast úrslitaleikja
tveggja síðustu landsmóta, þar
sem HSÞ og UMSK léku til úr-
slita á báðum mótunum. HSÞ
sigraði 1978 eftir framlengdan
leik, vítakastakeppni og hlutkesti.
UMSK sigraði 1981 eftir venju-
legan leiktíma. Á landsmótinu á
Selfossi 1978 var að mínu mati
leikinn betri handknattleikur en á
Akureyri 1981. Mun meira jafn-
ræði var með liðunum 1978 en
1981. Átta lið hafa tilkynnt þátt-
töku á landsmótinu nú í sumar.
UMSK sigraði á síðasta lands-
móti og er óneitanlega sigur-
stranglegast núna og hefur úr
lang stærsta hópnum að velja.
UMFN verða örugglega erfiðar
heim að sækja. Þær eru óvenju-
lega baráttuglaðar og hvattar
áfram af mjög samstilltum að-
dáendum.
HSÞ varð í öðru sæti á síðasta
landsmóti, hefur síðan þurft að
horfa á bak nokkrum reyndum
liðskonum og ungar og óreyndar
hafa komið í staðinn. Mér finnst
liðið ekki líklegt til stórátaka á
mótinu í sumar.
UÍA hefur byggst upp af stór-
um og sterkum stúlkum og leikur
liðsins mótast af einstaklings-
framtaki öðru fremur, en ekki
sterkri liðsheild, líklega vegna
fárra samæfinga, þar sem liðið
samanstendur af stúlkum frá
nokkrum stöðum fyrir austan. Á
góðum degi getur liðið náð langt
á landsmótinu í sumar.
HSK liðið var ungt á síðasta
landsmóti. Vegna góðrar aðstöðu
heima fyrir og ef liðið hefur hald-
ið saman, gæti það náð Iangt í
sumar. Liðið náði ekki eins langt
á síðasta landsmóti eins og ætla
hefði mátt.
UMFK liðið var ekki sannfær-
andi á síðasta landsmóti og með
það í huga spái ég því ekki mikl-
um frama í sumar þó á heimavelli
sé.
UMSB og UMSE verða að
mínu mati í neðstu sætunum á
mótinu í sumar.
Spá mín um endanlega röð er
þessi:
1. UMSK 5. HSK
2. UMFN 6. UMFK
3. HSÞ 7.-8. UMSE
4. UÍA 7.-8. UMSB
BÆNDUR
BÍLAVERKSTÆÐI
OG AÐRIR EIGENDUR
LAND-ROVER BIFREIÐA
ATHUGIÐ! f
HÖFUM ÚRVAL VARAHLUTA OG
BODDÝHLUTA í LAND-ROVER
EINNIG VARAHLUTI í RANGE-
ROVER OG MITSUBISHI
ÞEKKING OG REYNSLA
TRYGGIR ÞJÓNUSTUNA <
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
HEILDSALA - SMÁSALA
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
m
30
SKINFAXI