Skinfaxi - 01.06.1984, Page 25
Landsmótsspá — Landsmótsspá
Sigurlín Pétursdóttir UMFB og
Inga Heiða Heimisdóttir HSK
munu einnig vera í baráttunni um
3. sætið.
400 m skriðsund
Enn sem fyrr munu HSK stúlk-
urnar fylla verðlaunasætin.
1. Guðbjörg BjarnadóttirHSK
2. Stefanía HalldórsdóttirHSK
3. Jóhanna Benediktsd. HSK
100 m bringusund
Keppnin í þessari grein verður
mjög jöfn og ef allir verða í góðu
formi spái ég:
1. Sigurlín Pétursdóttir UMFB
2. Bryndís Ólafsdóttir HSK
3. María Óladóttir HSK
200 m bringusund
1. Sigurlín Pétursdóttir UMFB
2. María Óladóttir HSK
3. Sigrún Hreiðarsdóttir HSK
100 m baksund
Bryndís Ólafsdóttir verður
nokkuð sér á báti í þessari grein
en annað og þriðja sætið verður
ekki auðunnið. Þær sem koma
Síyndís Ólafsdóttir
helst til greina eru: Kolbrún Ylfa
Gissurardóttir HSK, Bryndís
Guðmundsdóttir HSK og Elín
Harðardóttir UMFB.
1. Bryndís Ólafsdóttir HSK
2. Kolbrún Y. Gissurard. HSK
3. Elín eða Bryndís
100 m flugsund
Held ég að úrslitin verði nokk-
uð skýr:
1. Bryndís Ólafsdóttir HSK
2. Guðbjörg BjarnadóttirHSK
3. Bryndís Guðmundsd. HSK
Ásta Halldórsdóttir UMFB
gæti komið inn í myndina.
200 m fjórsund
1. Bryndís Ólafsdóttir HSK
2. Bryndís Guðmundsd. HSK
3. sætið verður baráttusæti.
Þær sem koma til greina: Sigurlín
Pétursdóttir UMFB, Guðbjörg
Bjarnadóttir HSK og María
Ólafsdóttir HSK.
Guóbjörg Bjarnadóttir
4x100 m skriðsund
1. sætið vcröur í öruggum höndum
HSK stúlknanna
2. sveit UMFB
3. alveg á huldu
4 x 100 m fjórsund
1. sveit HSK
2. sveit UMFB
3. óvíst
í kvennagreinunum verður
einnig mikið um ný landsmóts-
met. Bryndís Ólafsdóttir verður
að öllum líkindum iðin við kol-
ann, og lætur ekki sitt eftir liggja.
Eins og fyrr sagði þá er ómögu-
legt að segja til um greinarnar
sem keppendur munu velja sér.
Hver þátttakandi má aðeins
keppa í 3 einstaklingsgreinum til
stiga, en ég setti Bryndísi Ólafs-
dóttur í 5 verðlaunasæti, sem
stenst engan veginn.
En þrátt fyrir þessa vankanta á
spánni ætti hún að sýna nokkuð
vel styrkleika liðanna. Karlasveit-
in hjá HSK og UMFN verða
nokkuð jafnar, en kvennasveit
HSK mun bera af hinum liðun-
um. Útkoman verður því sterk
HSK sveit sem fyrr og mun hún
sigra örugglega á þessu Lands-
móti.
Stigahæstu einstaklingar verða
frá mínum bæjardyrum séð: Kon-
ur: Bryndís Ólafsdóttir HSK.
Karlar: Eðvarð Eðvarsson
UMFN.
Kærar kveðjur,
Auðunn Eiríksson
skinfaxi
25