Skinfaxi - 01.02.1985, Blaðsíða 4
Fiéttii fiá félögum
U.M.S.K.
Skákþing U.M.S.K. var haldið
dagana 24. og 25. nóv. s.l. í Fé-
lagsheimilinu Fólkvangi á Kjal-
arnesi. Var teflt í tveimur flokk-
um 16 ára og yngri og 17 ára og
eldri. Keppendur voru alls 28, þar
af 12 í eldri flokknum og 16 í þeim
yngri. Teflt var eftir Monradkerfi,
6 umferðir í yngri flokk en 7 í
þeim eldri. Úrslit urðu þessi:
Eldri flokkur
Vinningar
1. Haraldur Baldursson 5 Vi
2. Ægir Pálsson 5
3. Baldvin Jóhannesson 5
Yngri flokkur
1. Bjarni Daníelsson 6
2. Geir G. Gunnarsson 5
3. Halldór Haraldsson 4
4. Guðjón F. Eiðsson 4
Mótshald var í umsjá Umf.
Kjalnesinga og var vel og mynd-
arlega að allri framkvæmd stað-
ið. Kjósarhreppur og Kjalarnes-
hreppur gáfu sinn hvorn farand-
bikarinn.
Sömu helgina og Skákþing
U.M.S.K. var haldið var Skóla-
hlaup U.M.S.K. við Mýrarhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi. Þar voru
keppendur frá 15 skólum af 16,
alls 301 keppandi. Úrslit í ein-
stökum hlaupum urðu sem hér
segir.
Stúlkur 7—8 ára.
1. Laufey Ýr Hákonardóttir
Hofstaðaskóla. Garðabæ.
Drengir 7—8 ára.
1. Aron Haraldsson
Digranesskóla, Kópavogi.
Flest stig hlaut Varmárskóli, Mos-
fellssveit 650.
Stúlkur 9—10 ára.
1. Anna Þórisdóttir
Digranesskóla, Kópavogi.
Drengir 9—10 ára.
1. Eiríkur S. Önundarson
Snælandsskóla, Kópavogi.
Flest stig hlaut Digranesskóli,
Kópavogi 692.
Stúlkur 11—12 ára.
1. Hildur Harðardóttir
Flataskóla, Garðabæ.
Drengir 11—12 ára.
1. Björgvin Óskarsson
Flataskóla, Garðabæ.
Flest stig hlaut Varmárskóli, Mos-
fellssveit 559.
Stúlkur 13—15 ára.
1. Fríða R. Þórðardóttir
Gagnfræðask., Mosfellssveit.
Drengir 13—15 ára.
1. Heimir Erlingsson
Gagnfræðask., Garðabæ.
Flest stig hlaut Gagnfræðaskóli
Mosfellssveitar 265.
íþróttasamband Fatlaðra
Mjög margt er á döfinni næstu
mánuði hjá íþróttasambandi
Fatlaðra, Þar á meðal mörg
Norðurlandamót í hinum ýmsu
íþróttagreinum. Hér á eftir er
skrá yfir það helsta sem er fram-
undan næstu mánuði:
Mars
1—2. EM í Sledge-Racing í Belgíu.
13—17. NM í skíðaíþróttum í Finnlandi.
14—17. EM í bogfimi í Belgíu.
16—17. Norræn útbreiðsluráð- stefna í Svíþjóð.
22—23. íslandsmót í sundi, haldið í Sundhöll Reykjavíkur.
Apríl
13. NM í lyftingum í Noregi.
20—21. íslandsmót á Akureyri samhliða útbreiðslu- fundi.
27—28 Göteborg-Open, al- þjóðlegt mót fyrir hreyfihamlaða haldið í Svíþjóð.
26—28. Aðalfundur ISOD haldinn í Póllandi.
Þá átti íþróttafélags Fatlaðra á
Akureyri 10 ára afmæli í des-
ember s.l. Félagið var stofnað 7.
des. 1974 og er því næstelst aðild-
arfélaga Í.F.
4
SKINFAXI