Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1985, Side 12

Skinfaxi - 01.02.1985, Side 12
Sígarettan kostar sjö mínútur af Ujmu Árni Johnsen Færustu sérfræðingar lækna- vísindanna halda því nú blákalt fram að hver sígaretta sem reykt sé kosti 7 mínútur af lífinu. Þessi niðurstaða er byggð á rannsókn- um þar sem tekið er tillit til reyk- ingatíma, magns og aldurs við- komandi. Meðaltalið sýnir að hver sígaretta kostar svo gífurlega sem niðurstaðan ber með sér. Hver skyldi hugsa um það dags daglega að i rauninni er reykinga- maðurinn sem hefur reykt í ein- hverja áratugi að eyða af lífi sínu tveimur klukkustundum og tutt- ugu mínútum á dag með því að reykja einn pakka á dag, kasta líf- inu á glæ, eða um 60 dögum á ári hverju. 300 deyja árlega Það eru einnig blákaldar stað- reyndir að árlega deyja um 300 ís- lendingar fyrir aldur fram af völdum reykinga, þ.e. lungna- krabba, kransæðasjúkdóma, lungnaþembu o.fl. o.fl. Þetta er um 10 sinnum hærri tala en um er að ræða i dauðaslysunum í um- ferðinni og þykir þó flestum nóg um bruðlið á mannslífum á þeim vettvangi. Þannig hafa rannsóknir á síð- ustu árum og mánuðum leitt fram í dagsbirtuna mun meiri hættu af völdum tóbaks og tóbaksreyks, en menn hafa haft tækifæri til að gera sér grein fyrir hingað til manna á meðal. Ný lög í ljósi þessa voru sett á Alþingi ný lög um tóbaksvarnir, fyrst og fremst til þess að reyna að fyrir- byggja reykingar og einnig til þess að draga úr reykingum þeirra sem reykja og þá í flestum tilvikum fólks sem byrjaði að reykja sjálf- viljugt en reykir ekki sjálfviljugt því að það er orðið að fíklum og þar er hægara sagt en gert að snúa við blaðinu. Margt er þó til varn- ar, en ástæða er til að fagmenn í læknisfræði fjalli fremur um þá þætti málsins. Mikill meirihluti hyntur hömlum Áður en alþingismenn gengu til atkvæða um tóbaksvarnalögin lá á borðinu könnun Hagvangs um reykingavenjur íslendinga og þar kom fram að um 80% lands- manna voru hlyntir hömlum á reykingum. 76% voru fylgjandi banni á sölu tóbaks til barna yngri en 16 ára, 81% voru hlyntir rétti manna til reykleysis á vinnu- stöðum og 82% töldu æskilegt að reyklaus svæði væru á veitinga- stöðum. Þessi sama könnun sýndi, að tæp 60% fullorðinna lands- manna reyktu ekki og ef börn eru talin með hækkar sú tala í 70%. Þannig er það í raun mikill minni hluti þjóðarinnar sem reykir. Önnur könnun um þessi mál, sem Hagvangur framkvæmdi í apríl s.l. leiddi sömu hlutfallstölur í ljós. Hins vegar er tóbakssala á hvern landsmanna nú minni en fyrir áratug. Það má því kannski segja að það hefði ekki átt að koma á óvart að þessum lögum yrði vel tekið. Sá þáttur laganna, er varðar takmörkun reykinga er í raun alls ekki sá veigamesti, heldur ber miklu frekar að líta á hann sem langþráð tæki til handa hinum þögla meirihluta, sem orð- ið hefur að þola reykingar og þar með skaðleg áhrif óbeinna reyk- inga án þess að geta borið hönd fyrir höfuð sér. Er hér ekki síst átt við börn og unglinga. Sú einfalda staðreynd blasir við, að ef það fólk sem ekki reykir, notar ekki þetta verkfæri og tryggir þar með framgang laganna, geta engin lögregluyfirvöld knúið menn til hlýðni. Þess vegna ríður mikið á, að fólkið í landinu taki höndum saman og semji sín á milli um hvar má reykja og hvar ekki og sýni í þeim efnum hógværð og til- litsemi. Það er engin lausn að vinnufélagar berjist innbyrðis og helli jafnvel heitu kaffi hver yfir annan. Þeim mun ánægjulegra er að öll fyrstu viðbrögð benda til þess að hógværð og tillitssemi ráði með örfáum undantekning- um. Heilbrigðisvandamál Tóbaksvarnarnefnd vill benda 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.