Skinfaxi - 01.02.1985, Side 18
Bridge
Viökvœm spil,
spilist varlega
Guðmundur P. Arnarson
Þú spilar eðlilegt kerfi og opn-
ar á einu hjarta, sem lofar fimm-
lit, á eftirfarandi hönd:
Suður
s K6
h A9542
t AD42
I D6
Makker segir tvö lauf, þú tvo tigla
og félagi stekkur þá í þrjú hjörtu.
Þar með lýsir hann yfir að hann
hafi áhuga á að hefja þreifingar
um slemmu í hjarta.
Eftir þessa byrjun kemur ekki
til greina að spila grönd, en þú
segir samt þrjú grönd til að lýsa
spilunum betur. Makker segir
fjögur lauf, fyrirstöðusögn, þú
fjóra tígla og hann slær af með
fjórum hjörtum. Alslemma kem-
ur þá ekki lengur til álita og þú
lýkur sögnunum með sex hjört-
um.
Vestur spilar út spaðagosa og
blindur kemur upp:
Norður
s AD
h K876
t 763
1 AK53
Suður
sK6
h A9542
t ADd42
I D6
18
Þetta lítur ekkert allt of vel út.
Svo virðist sem hjörtun þurfi að
liggja 2—2 og tígulkóngurinn að
vera réttur fyrir svíningu. En það
eru aukamöguleikar til, sem bæta
slemmuna nokkuð.
Fyrsta skrefið er að taka tvo
efstu í trompinu. Segjum að
trompin falli 2—2. Hvernig viltu
halda áfram?
Nú er best að taka seinni spaða-
slaginn og spila fjórum sinnum
laufi. Ef vestur á lauflengdina er
spilið unnið: þú fleygir einfald-
lega tígli í fjórða laufið og vestur
verður að spila upp í gaffalinn í
tíglinum eða út í tvöfalda eyðu,
sem er allt eins gott. Þá er hægt
að trompa i borðinu og kasta
tíguldrottningunni heim.
Ef austur fylgir hins vegar lit í
fjórða laufið, er best að trompa,
taka tígulás, fara inn í blindan á
tromp og spila tígli á drottning-
una. Þá vinnst spilið alltaf ef
tígulkóngurinn er í austur, en
einnig ef vestur á hann blankan
eða annan:
Norður
s AD
h K876
t 763
1 AK53
Vestur Austur
s G109432 s 875
h DIO h G3
t KIO t G984
1 942 I G1087
Suður
sK6
h A9542
t AD42
1 D6
Vestur er frosinn inni á tígulkóng
og verður að spila út í tvöfalda
eyðu.
Spilið er þvi greinilega all sterkt
ef trompin falla. En hvað ef vest-
ur á þrjú tromp? Er þá nokkuð til
ráða?
Það er alla vega ástæðulaust að
gefast upp án baráttu. Tígulkóng-
urinn verður að liggja rétt, svo
mikið er vist. En einn slag vantar
enn til að fylla tylftina. Tólfti
slagurinn getur komið á tvennan
hátt: með kastþröng á austur í
láglitunum, ef hann á fjórlit að
minnsta kosti í lauf og tígli eða
með því að hreinsa upp hliðarlit-
ina og spila vestri inn á tromp til
að láta hann spila út i tvöfalda
eyðu eins og áðan.
Seinni leiðin er betri, því hún
byggist aðeins á því að vestur eigi
ekki fleiri en tvo tígla. Laufið
skiptir ekki máli:
Norður
s AD
h K876
t 763
1 AK53
SKINFAXI