Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1985, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.02.1985, Blaðsíða 20
Sitt lítið af hverju um sund Hörður S. Óskarsson Hugleiðing í byrjun árs Þó aðalkeppnistímabil sund- manna spanni yfir lok og byrjun hvers árs, þ.e. frá sept. — mai/ júní, þá er alltaf svo að árangur liðins árs er dreginn saman um hver áramót. Þetta sýna bæði meta- og af- rekaskrár, svo ekki sé minnst á val íþróttamanns ársins sem er nú orðin föst hefð í íþróttalífi lands- manna. Þegar þetta er ritað liggur ekki endanlega fyrir afrekaskrá sund- manna fyrir árið 1984. íslensk sundmet urðu alls 99 og má segja að liðið keppnisár hafi verið með því albesta um áraraðir og sjaldan hefur verið jafn mikil gróska í sundinu sem á liðnu ári. Árangur sameiginlegs átaks Þar kemur margt til, ötult starf áhugamanna og vilji framá- manna sveitarfélaga að byggja upp laugar og hlúa þá um leið að sundinu sem almenningsíþrótt. Stóraukin þjálfun og menntun sundþjálfara hefur greinilega skilað sér bæði í betri árangri og fjölda þátttakenda. Nýir sundstaðir hafa risið upp. Aðrir hafa verið betrumbættir. Aukið sundlíf hefur dafnað á stöðum sem nánast voru óþekktir fyrir sundiðkun. Norrœna sundkeppnin 1984 200 metra sundkeppnin jók að- sókn að sundstöðum og skapaði áhuga í vissum tilfellum þó lítið færi fyrir auglýsingum um keppnina. Úrslit norrænu keppn- innar urðu þau að Færeyingar sigruðu og við urðum þar á eftir, síðan komu hinar Norðurlanda- þjóðirnar langt á eftir. 1. Færeyjar 1,271 sund á mann 2. ísland 1,021 sund á mann 3. Finnland 0,127 sund á mann 4. Noregur 0,117 sund á mann 5. Svíþjóð 0,028 sund á mann 6. Danmörk 0,003 sund á mann Umhverfis jörðina Færeyingar voru vel að sigri sínum komnir og er engin minnk- un að tapa fyrir þeim, þeir náðu upp góðri stemmningu. Þrátt fyr- ir allgóða þátttöku okkar náðum við aldrei upp því sem til þurfti. Talið var að við þyrftum að synda 2 hringi í kringum jörðina til að sigra þá, eða 490,500 sund sem eru 52,940 mílur. Við syntum 364,488 sund eða 39,404 mílur sem er l'A hringur eða til Mel- borne í Ástralíu á öðrum hring og dugði það ekki til. Fullorðið fólk og miðaldra tók nú meiri þátt en oft áður — skólanemendur voru tiltölulega lítið inní myndinni og gerði það e.t.v. útslagið. En ég tel að við megum vel við una því til- gangurinn var líka sá að fá fólk al- mennt meira til að iðka sund sér til heilsubótar. Glœsileg frammistaða Sandgerðinga í bæjakeppni var reiknireglan sú að deila íbúatölu upp í fjölda sunda. Sundlaug Hvammstanga. 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.