Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1985, Page 26

Skinfaxi - 01.02.1985, Page 26
U.M.F.K. en þeir tveir síðast nefndu komust ekki á 6 manna skrána þótt þeir köstuðu vel yfir 50 m. Unnar Vilhjálmsson, Unn- ar Garðarsson og Sigurður Matthíasson kasta vonandi 70 m næsta sumar. Til þess hafa þeir alla burði. Vésteinn er góður í kringlu og á eftir að gera enn betur þegar hann mætir á ný til leiks sumarið 1986. Annars vantar nýtt blóð í kringlu- kastið því næstu menn eru orðnir nokkuð þroskaðir og fáir ung- lingar virðast stunda þessa íþrótt af alvöru. Helgi og Pétur, kúluvarpararn- ir öflugu, sýndu ekki framfarir á árinu og ollu mér nokkrum von- brigðum. Þeir og aðrir taka sig vonandi á og sýna hvað í þeim býr næsta sumar. Sleggjukastið á erfitt uppdrátt- ar eins og stangarstökkið og kenni ég aðstöðu og leiðbein- endaskorti um. Stökk íslandsmet Unnars í hástökki bar hæst. Hann er geysilega öfl- ugur íþróttamaður og tel ég hann eiga mesta möguleika í tugþraut, vilji hann æfa þá grein. „Gamli methafinn“ náði sér ekki á strik en nú er hann reynsl- unni ríkari og veit að hann nær ekki toppárangri án metnaðar og sjálfsögunar. í heild er árangur hástökkvara slakur, aðeins Unnar, Jón og Guðmundur U.S.A.H., sem er 14 ára, sýndu verulegar framfarir. Guðmundur er ekki á 6 manna skránni. Vindurinn lék stórt hlutverk í lang- og þrístökki. Sigurvegarinn í þeim greinum á landsmótinu, Guðmundur Sigurðsson, er best- ur í þrístökkinu en sú grein er því miður á lágu plani. Helst má vænta einhvers af þeim HSK mönnum Jóni Arnari og Ólafi, sem er aðeins 15 ára gamall og fór yfir 13 m. Sigurjón og Jón B. eru efnilegir og bæta sig mikið í langstökkinu. Guðmundur Sigurðsson átti besta stökk ársins 7.23 m, en í of miklum meðvind. Páll Kristins- son og Jón Hilmarsson eru ungir að árum og geta gert góða hluti og tryggt sér sæti á 6 manna af- rekaskránni næsta sumar. Torfi er bestur í stönginni og trúlega sá eini sem eitthvað æfir þá íþrótt að ráði. Er best að hafa sem fæst orð um þessa grein. En íþróttaleiðtogum og áhrifamönn- um skal bent á að stangarstökk verður ekki æft nema aðstaða sé fyrir hendi. Tugþraut Nær eingöngu HSK menn fóru í gegnum tugþraut s.l. sumar. Þótt árangur hafi ekki verið neitt sérstakur er virðingarvert að halda slíkt mót. Ég tel að Jón B. Guðmundsson sé efnilegasti tug- þrautarmaður landsins í dag. Hann er gæddur því líkamlega og andlega atgervi sem tugþrautar- maður þarfnast, ætli hann sér stóra hluti. Mikils hefur verið vænst af Gunnari s.l. ár og vonandi blómstrar hann næsta sumar. Þráinn var meiddur og íhugar nú að leggja skóna á hilluna eftir við- burðaríkan feril. Konur Spretthlaup Svanhildur var sterkust á sprettinum. Hún var óheppin að bæta sig ekki í 100 m, hljóp þeim mun betur 200 m. Helga bætir sig hægt en örugglega. Unnur Stef- áns var sterkari en ’83 og virðist vera að færa sig meira yfir í 800—1500 m. Valdís er komin í Helga Unnarsdóttir. UMSE aftur og styrkir liðið mik- ið. í heild þokast spretthlauparar í rétta átt en betur má ef duga skal. Millivegalengdir (800—3000) Unnur var best í millivega- lengdum og sýndi mikla keppnis- hörku á árinu. Sólveig USAH og Lillý UIA eru efnilegar. Sólveig kom fyrst fram á þessu ári. Hún var best í 3000 m. Árangur fer batnandi í þessum greinum og er vonandi að stelpurnar æfi vel, þá. geta þær orðið góðar. Grindahlaup Árangur í grindahlaupunum var lélegur. Fá ungmennafélög hafa aðstöðu til að æfa grind og þeir sem aðstöðu hafa notfæra sér hana ekki nógu vel. Boðhlaup Boðhlaupin voru léleg og er það kynlegt því mörg félögin og samböndin hafa góðum einstak- lingum á að skipa. Sveitir á borð við UMSK, UMSE og HSK eiga að geta hlaupið 4x100 á 47—49 sek. og 1000 m á 2:17—2:20 með samæfingu og skynsamlegri upp- stillingu. 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.