Skinfaxi - 01.02.1985, Page 27
iris Gröníeldt.
Köst
Mikil gróska er í köstunum og
bjart framundan. íris G. UMSB
ber höfuð og herðar yfir aðra
kastara og er á réttri leið. Helga
Unnarsdóttir UÍA kom vel út á
árinu en á mikið inni. Sama má
segja um Soffíu Gestsdóttur.
Með bættri tækni geta framfarir
orðið enn meiri næsta ár.
Mest á óvart komu að mínu
mati Guðbjörg Gylfadóttir
USAH í kúluvarpi og Sólveig
Svanhildur Kristjónsdóttir.
Guðjónsdóttir HSK í spjótkasti.
Þótt breidd sé talsverð í köstum
virðist algengt að stúlkurnar
staðni áður en þær geta talist góð-
ar. Aðeins íris hefur náð að
sprengja sig út úr meðalmennsk-
unni og vona ég að fleiri fylgi á
eftir.
Stökk
Um afturför var að ræða í há-
stökki enda þurftu stúlkur nr. 2
og 3 í þessari grein í fyrra að sinna
móðurhlutverki sínu. Er vonandi
að þær taki þráðinn upp að nýju
næsta sumar. Inga Úlfsdóttir
UMSK, Kristín Gunnarsdóttir
HSK, sem er aðeins 15 ára, Dag-
björt Leifsdóttir HVÍ og Sigríður
Guðjónsdóttir HSK eru í fram-
för. Þórdís UÍA var nokkuð frá
sínu besta en samt langbest með
1.70.
Svanhildur UMSK og Birgitta
HSK stukku báðar 5.43 m í lang-
stökki. Svanhildur átti ógilt stökk
sem mældist 5.69 m. Þær eru
báðar í framför og virðist Birgitta
bæta sig í öllum greinum nema
þeirri sem hún æfir fyrir, þ.e.
spjótkastinu. Hafdís UMSK er
aftur farin að keppa, líka Ingi-
björg Ivarsdóttir sem bætti sig
reyndar í hástökki.
Átaks er þörf í stökkgreinun-
um því þær eru á lágu plani.
7 þraut
Aðeins Birgitta og Svanhildur
fóru í gegnum sjöþraut. Árangur
Birgittu er þokkalegur og ætti
hún að geta farið yfir 5000 stig
næsta sumar. Engin stúlka leggur
aðaláherslu á sjöþraut og er það
miður.
Lokaorö
Innan UMFÍ eru nokkrir af
bestu íþróttamönnum landsins og
einn á heimsmælikvarða. Margir
SoffíaR. Gestsdóttir.
þessara snjöllu íþróttamanna æfa
við góðar aðstæður utanlands
samhliða námi. Aðstöðuna sem
við höfum upp á að bjóða innan-
lands þarf að bæta. Sérstaka
áherslu þyrfti að leggja á þær
greinar sem árangur er hvað lak-
astur í. Með skipulagðri upp-
byggingu frjálsra íþrótta heima í
héruðum aukast líkurnar á því að
fleiri toppmenn komi fram og
verði þjóð sinni og sjálfum sér til
sóma.
Birgitta Guöjónsdóttir.
27
SKINFAXI