Skinfaxi - 01.02.1985, Page 35
undum áhugafólks eldri og sem
mest er vert einnig yngri félag-
anna um land allt.
Nú þegar Ármann Pétursson er
horfinn úr hópi okkar þakka ég
af heilum hug ánægjulegt sam-
starf við hann og ber fram þá ósk,
sem ég veit að er minningu hans
best samboðin varðandi þennan
þátt í Iífsstarfi hans, sem ég hef
hér getið, að ungmennafélögin
megi bera gæfu til að eignast inn-
an sinna vébanda sem flesta hon-
um líka.
Við hjónin vottum ekkju hans
og fjölskyldu okkar dýpstu sam-
úð. Ég veit að hann var ástríkur
heimilisfaðir og þau hafa mikils
misst við fráfall hans. Hjá okkur
öllum, sem honum kynntumst,
mun minningin um góðan dreng
vara.
Axel Jónsson
Landsmótsnefndin 1957.
Ritsljóiaskipti
Um síðustu áramót lét Ingólfur
A. Steindórsson af störfum rit-
stjóra Skinfaxa og hafði þá unnið
við blaðið í þrjú ár. Skinfaxi tók
ýmsum breytingum í ritstjórnar-
tið Ingólfs, m.a. var þá farið að
prenta kápu hans í lit. Ingólfi eru
hér með færðar þakkir fyrir far-
sæl störf sín.
Nú hefur Guðmundur Gisla-
son verið ráðinn ritstjóri blaðsins
og er þetta fyrsta blaðið sem kem-
ur út undir hans stjórn.
Guðmundur er íslenskum ung-
ntennafélögum að góðu kunnur
fyrir margvísleg störf í hreyfing-
unni.
Guömundur
Gíslason.
Guðmundur er fæddur í
Reykjavík 1954 og starfaði í
Knattspyrnufélaginu Víking frá
unga aldri en 1974 flytur hann á
Eskifjörð og verður fljótlega for-
maður Ungmennafélagsins
Austra og þar með má segia að
störf hans innan heyfingarinnar
hefjist. Síðar var Guðmundur í
stjórn UÍA.
Guðmundur útskrifaðist úr
íþróttakennaraskóla Islands vor-
ið 1980 og hefur síðan verið
íþróttakennari á Eskifirði þar til
nú í haust.
Þær íþróttagreinar seip Guð-
mundur hefur helst lagt lið sitt
eru handknattleikur og knatt-
spyrna (auk þess sem hann er
gamall Landsmótskeppandi í
starfsíþróttum).
Við bjóðum Guðmund vel-
kominn til starfa við blaðið og
óskum honum góðs gengis.
S.G.
SKINFAXI
35