Skinfaxi - 01.02.1985, Qupperneq 36
BAlþjóöaór
œskunnar
Guðmundur Guðmundsson
Ákvöröun S.Þ.
Ákvörðun um Alþjóðaár æsk-
unnar má rekja aftur til ársins
1977, en þá var á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna samþykkt að
mæla með því við allsherjarþing-
ið. Árið 1979 samþykkti svo 34.
allsherjarþing S.Þ. að helga æsku-
fólki um allan heim árið 1985.
Samþykktin kvað á um að kjörorð
æskulýðsársins skuli vera: Þátt-
taka — þróun — friður. ísland var
eitt þeirra fjölmörgu ríkja sem
stóðu að þessari samþykkt.
Árið 1980 skipaði 36. allsherj-
arþing S.Þ. sérstaka ráðgjafar-
nefnd til að vinna að undirbúningi
og framkvæmd æskulýðsársins.
24 ríki eiga sæti í ráðgjafarnefnd-
inni, en hún hefur aðsetur í Vín.
Auk hinna þriggja kjörorða æsku-
lýðsársins, þátttaka — þróun —
friður, hefur ráðgjafarnefndin
bent sérstaklega á fjögur önnur
verkefnasvið. Þau eru:
— Atvinnumál æskufólks.
— Húsnæðismál æskufólks.
— Frístundamál æskufólks.
— Æskufólk og vímuefni.
íslenska
íramkvœmdaneíndin
í ársbyrjun 1983 skipaði þáver-
andi menntamálaráðherra, Ingvar
Gíslason, nefnd til þess að undir-
búa og vinna að framgangi æsku-
lýðsársins hér á landi. Formaður
nefndarinnar er Níels Árni Lund
æskulýðsfulltrúi ríkisins. Hlut-
verk nefndarinnar er að kynna
þeim aðilum sem að æskulýðs-
málum vinna, markmið og verk-
efni æskulýðsársins. Þannig er
meginhlutverk nefndarinnar:
— að kynna æskulýðsárið,
— að miðla upplýsingum,
— að hvetja til þátttöku,
— að stuðla að samræmingu á
innlendu starfi,
— að hafa tengsl við samsvarandi
nefndir í öðrum löndum, svo
og ráðgjafarnefnd S. Þ.
Þess gætir allt of oft um al-
þjóðaár S.Þ. að raunhæf verkefni
og árangur vill kafna í funda- og
ráðstefnufargani, bæði á alþjóða-
vettvangi og innan þjóðlanda.
Þetta vill framkvæmdanefnd
æskulýðsársins hér á landi forðast
en í stað þess leggja áherslu á eftir-
farandi stefnu:
1. Verkefni æskulýðsársins hér á
landi taki mið af islenskum að-
stæðum og þörfum íslenskrar
æsku.
2. Áhersla á kjörorð æskulýðs-
ársins: Þátttaka — þróun —
friður.
3. Áhersla á fyrrgreind fjögur
verkefnasvið: Atvinna — hús-
næði — frístundir — vímuefni.
4. Áhersla á starf á vettvangi
æskufólksins sjálfs.
5. Sem flestir þeir aðilar er að
æskulýðsmálum vinna velji sér
einhver verkefni á þeim vett-
vangi sem þeir helst kjósa sér.
6. Æskufólkið sjálft verði virkt í
vali verkefna og starfi að fram-
kvæmd þeirra.
7. Framkvæmdanefndin fái upp-
lýsingar um öll slík verkefni.
Þátttaka
ungmennafélaga
Á æskulýðsári verður vafalaust
litið til ungmennafélaganna með
frumkvæði og starf í þessum efn-
um, enda falla kjörorð og verk-
efnasvið æskulýðsársins vel að til-
Glaölegt ungt fólk.
36
SKINFAXI