Skinfaxi - 01.02.1985, Blaðsíða 37
gangi og markmiðum ungmenna-
félagshreyfingarinnar.
Ungmennafélag íslands hefur
nú þegar ákveðið nokkur verkefni
og er þeirra getið á öðrum stað í
blaðinu. Skógræktarverkefnið,
þar sem áformað er að planta 26
þúsund trjáplöntum er, stórt verk-
efni og verður ekki gert nema með
þátttöku fjöldans. Með verkefn-
inu „Eflum íslenskt“ og baráttu
fyrir kaupum og notkun á inn-
lendri framleiðslu geta ung-
mennafélagar stuðlað að sköpun
margra nýrra atvinnutækifæra
sem nú vantar fyrir það æskufólk
sem senn leitar út á atvinnumark-
aðinn. Með slíkri baráttu getur
æskufólk haft mikilvæg áhrif á
þróun þjóðfélagsins.
Hvers vegna
œskulýösár?
En verður það málefnum æsku-
fólks til framdráttar að helga því
sérstakt baráttuár? Er staða ís-
lenskrar æsku það slæm að hún
þurfi á sérstöku baráttuári að
halda? Ákvörðun um alþjóðaár
æskunnar hefur væntanlega ekki
verið tekin með þarfir íslenskrar
æsku í huga, heldur þess æsku-
fólks víða um heim sem býr við
verulegt réttleysi, ófrið og vonleysi
um framtíð sína.
En jafnvel þó íslenskt æskufólk
búi við góðar aðstæður miðað við
jafnaldra sina víða annarsstaðar,
er full ástæða til þess að hvetja
það til að gera sér grein fyrir stöðu
sinni, vandamálum og möguleik-
um á æskulýðsári. Einnig að nýta
tækifæri sin og samtakamátt til
þess að hafa áhrif á þróun þjóðfé-
lagsins — þess þjóðfélags sem ís-
lensk æska mun taka við og lifa og
starfa í.
Guðmundur Guðmundsson
Leikritasafn UM.F.Í.
Leikritasafn U.M.F.Í. er orðið
allmikið að vöxtum, en á liðnu ári
hefur lítil hreyfing verið á útlán-
um.
Eigendur safnsins eru öll ung-
mennafélög landsins og notendur
eru nú orðnir á þriðja hundrað,
bæði félög, klúbbar, einstaklingar
og skólar. Um þessar mundir er
safnið í núverandi mynd 15 ára.
En fyrr á árum var U.M.F.Í. með
allviðamikið leikritasafn sem var
stöðugt í útláni.
Skinfaxa þykir rétt að minna
með örfáum orðum á allt það efni,
leiki og stutta leikþætti sem þar er
að fínna og er mest við hæfi
barna.
Mörg félög og skólar hafa á
undanförnum árum notfært sér
safnið sem stofnað var af mikilli
framsýni á sínum tíma.
Eftir að safnið var aflögufært
með efni, sýndi það sig líka að
börfin var mikil og eftirspurn eftir
skemmtiefni bæði á árshátiðar og
minni samkomur, var sífellt fyrir
hendi.
Það efni sem nú er til hefur ver-
ið ljósritað af ýmsum aðilum og er
það vel. Ef til vill af þeim orsökum
er minna um útlán og eftirspurn
úr safninu sjálfu.
Öðru hvoru bætast alltaf við
þættir sem fengur er í, og þeir
sem hugsa sér nú að nýta sér þessa
þjónustu frá þjónustumiðstöð
U.M.F.Í. ættu óhikað að hringja
og panta upplýsingamöppu um
allt það sem til er.
Þá væri líka vel þegið að fá
stutta leikþætti frá þeim sem eiga
slíkt ekki er til í safninu nú þegar.
þegar.
Við fjölföldum síðan og miðl-
um til félaga og þeirra sambanda
sem áhuga hafa á.
Möppur meö leikritasafninu.
SKINFAXI
37