Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1985, Síða 38

Skinfaxi - 01.02.1985, Síða 38
Félagsmólaskóli U.MJÍ Eyjólfur Árni Rafnsson Félagsmálaskóli U.M.F.Í. var stofnaður 1. febrúar árið 1970, og er því 15 ára á þessu ári. í því til- efni er ekki úr vegi að líta til baka, huga að hvað áunnist hefur, hvað betur hefði mátt fara og leggja þannig grunn að því, hvernig best verði staðið að fræðslu- og út- breiðslumálum á hans vegum i ná- inni framtíð. Það er ætíð gott fyrir þá sem að félagsmálum vinna, að málefnaleg gagnrýni sé viðhöfð á þeirra störf, en því miður hefur lít- ið farið fyrir slíkri gagnrýni á störf skólans, a.m.k. hin síðari ár. Frá því að fyrsta námskeiðið var hald- ið á vegum skólans, í iþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal 21—22. febr. 1970, hefur mikið vatn til sjávar runnið, og miklar breytingar orðið á starfsemi ung- menna- og íþróttafélaga í landinu. Um þetta leiti efldust víða um land mörg félög og sambönd þeirra og var þar mikið starf unn- ið. Hvarvetna voru haldin nám- skeið í félagsstörfum, og ekki er vafi að þau áttu drjúgan þátt í því að efla starfsemi félaga innan U.M.F.Í., og gera samtökin að þeirri fjöldahreyfingu sem hún er í dag. Því er óhætt að segja, að einn megin þátturinn í starfsemi Félagsmálaskólans hafi verið til þessa uppbyggingarstarf. Svo mun auðvitað verða áfram, en annar þáttur kemur til með að verða æ virkari í starfi skólans, og hann er sá að viðhalda því sem áunnist hefur, og sjá svo um að ekki slakni á. Nú undanfarið hefur þeim er þetta ritar virst svo, að almennur skilningur væri ekki fyrir þessu. Það mat er of oft lagt á starf skól- ans, að halda þurfi ákveðinn fjölda námskeiða á ári hverju til að hann risi undir nafni. Þetta er alrangt. Eftirspurn eftir t.d. nám- skeiðum á grunnstigi hefur farið minnkandi, vegna þess að þörfin á þessu námsefni er ekki eins mikil nú og áður því það er búið að „plægja það stóran hluta af akrin- um“, en þörfin verður samt áfram fyrir hendi að einhverju marki. Eftirspurn eftir sérhæfðu náms- efni, hefur hins vegar vaxið held- ur, en ekki nóg, og það er málefni sem þarf að hugsa um. í svo stórum samtökum sem U.M.F.Í. eru, þarf að vera stöðugt í gangi kynning á starfi þeirra. Sú kynning er í gangi, því stjórnar- menn og fleiri á vegum U.M.F.Í. fara á ársþing eða aðalfundi hjá hverju einasta sambandi eða að- ildarfélagi einu sinni á ári, og er þá sagt frá þeirri þjónustu sem veitt er frá Mjölnisholti 14, og þar á meðal Félagsmálaskólanum. Staðreyndin er sú að allflestir vita um þessa fjölbreyttu félagsmála- fræðslu og gagnsemi hennar. Af hverju er þá ekki meiri eftirspurn? A stjórn skólans að stunda ein- hvers konar sölumennsku á nám- skeiðum, og ákveða hverjir hafa þörf á félagsmálafræðslu á hverj- um tíma? Verða ekki einstök félög og/eða sambönd að finna þörfina sjálf? Undirritaður ætlar ekki að svara þessum spurningum í þess- um greinarstúf, það verður gert seinna, en hvetur til umræðu um þetta hér á þessum vettvangi, það er virkilega þörf á því. Með von um góðar undirtektir. ísland allt. Eyjólfur Árni Rafnsson. Frá félagsmálanámskeiöi. 38 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.