Skinfaxi - 01.06.1985, Qupperneq 18
Skákþáttui
Kaspaiov mátaöi
Hubnei í Hamboig
Jón L. Árnason
Aðeins nokkrum dögum eftir
að einvíginu langa í Moskvu var
hætt fréttist af öðrum keppandan-
um austur í Siberíu. Skákunnend-
um brá óneitanlega við þá fregn
og hugðu sumir ekki allt vera með
felldu en síðar kom á daginn að
verið var að tefla. Garrí Kasparov
var mættur fyrir félag sitt frá
heimabænum Bakú og munaði
ekki um að taka eina létta til við-
bótar við þær fjörutíu og átta sem
hann tefldi við Karpov á fimm
mánuðum.
Forseti alþjóðaskáksambands-
ins, Campomanes, ákvað að hlífa
þeim félögum við frekari vopna-
viðskiptum og bar við að einvígið
væri þegar orðið allt of langt og
þrek keppenda á þrotum. Þetta
var umdeild ákvörðun. Mörgum
fannst hann draga taum Karpovs,
sem var sagður aðframkominn af
þreytu og búinn að missa fimm —
núll forskot niður í fimm — þrjú.
Aðrir töldu Campo hafa brugðist
rétt við, því að verið væri að tefla
um heimsmeistaratitil í skák en
ekki að kanna þrek manna.
Það var líkt Kasparov að fara
austur til Síberíu og sýna skák-
heiminum að hann væri enn til í
tuskið og óþreyttur. Kasparov er
enda þrekmenni, hleypur og
syndir á hverjum degi og drekkur
sterkt Kákásuste milli æfinga.
Karpov liggur enn í dvala eftir ein-
vígið en Kasparov teflir eins og
ekkert hafi í skorist. Nú síðast fór
hann í víking til Hamborgar og
18
tefldi æfingaeinvígi við V.-Þýska
stórmeistarann Robert Hubner
upp á sex skákir og fyrirhugað er
einvígi við sænska stórmeistarann
Ulf Andersson í Belgrad. Allt lið-
ur í þjálfuninni fyrir heimsmeist-
araeinvígi númer tvö, sem hefst í
Moskvu 20. september.
Einvígið við Huber var haldið
fyrir tilstuðlan tímaritsins Spiegel
og auðvitað var Kasparov gripinn
glóðvogur í leiðinni og tekið við
hann viðtal. Hann er bersögull um
afdrif einvígisins i Moskvu og
vandar Campomanes ekki kveðj-
urnar. Hann segir að Campo hafi
komið með þá tillögu er Kasparov
var að rétta sinn hlut og staðan
orðin 5—2, að átta skákir yrðu
tefldar til viðbótar og ef hvorugur
væri þá kominn með tilskylda 6
vinninga yrði hætt og teflt aftur í
september. „Það gat ég ekki sætt
mig við, enda hefði ég þá þurft að
vinna aðra hverja skák“. Kasparov
segist hafa slengt þvi fram, að ef
Campo vildi endilega slíta einvíg-
inu, væri nær að gera það strax.
Þar með var hann sjálfur talinn
eiga hugmyndina að því að hætta.
Hubner náði aðeins þremur
jafnteflum í einvíginu en tapaði
þremur. Miðað við gang skákann
hafði hann þó átt að fá fleiri vinn-
inga. Var með betri stöðu í öllum
jafnteflisskákunum, tapaði einni
jafnteflisstöðu (4. skákin) og tví-
sýnni stöðu í 2. einvígisskákinni.
Úrslitin 4,5—1,5. Besta skák
Kasparovs og raunar sú eina sem
var verulega sannfærandi, var 1.
skákin. Þar tókst honum að sýna
klærnar í líflegu tafli.
Hvitt: Robert Hubner
Svart: Garrí Kasparov
Enskur leikur.
I.c4 e5 2.Rc3 d6 3.d4 exd4
4.Dxd4 Rf6 5.g3 Rc6 6.Dd2 Be6
7.Rd5
Nauðsynlegt, því að ef 7.b3, þá
7.—d5! og svatur nær frumkvæð-
inu.
7.-Re5 8.b3 Re4 9.De3 Rc5
Byrjanabækur gefa 9.-c6
10.Dxe4 cxd5 ll.cxd5 Da5 +
12.Bd2 Bxd5 13.Df4 og hvítur
stendur betur. Ég sá textaleikinn
fyrst í skák Smejkal við Rogoff í
B-flokki á IBM-skákmótinu í
Amsterdam 1980. Sú skák hefur
ekki farið víða.
10.Bb2 c6 11. Rf4?
SICINFAXI