Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1985, Page 25

Skinfaxi - 01.06.1985, Page 25
Framkvœmdastjóra- námskeid crð Núpi Dagana 7. 8. og 9. júní s.l. var haldið að Núpi í Dýrafirði nám- skeið fyrir starfsmenn ungmenna- félaganna. Allgóð þátttaka varð, en að Núpi hittust 20 félagar frá 12 hér- aðssamböndum. Farið var yfir alla verkþætti sem tilheyra starfi ungmennafélganna s.s. sumar- búðastarfið, skógrækt, fjármál og tekjuöflun, héraðshátíðir, íþrótta- starfið og samskipti við ung- mennafélaga á norðurlöndunum o.fl. o.fl. Auk þess var efnt til „Núps- leika“ svo þátttakendur gætu haldið sér í formi. Keppt var í knattspyrnu, körfubolta, blaki og sundi og skipt í vestur-suður- og noðurlandslið. Þá var farið í göngu- og skoðunarferðir um ná- grennið s.s. í Skrúð og viðar. (Skrúður er fagur skógræktarreit- ur á Núpi). Myndirnar hér á siðunni sína þátttakendur í leik og starfi og segja meir en mörg orð. Námskeiðið tókst í alla staði mjög vel og talið með því betra sem haldið hefur verið og voru menn/konur vígðir allhressilega inní hreyfinguna svo eftir var tek- ið. Eins og títt er um svona viðdvöl og samveru koma fram margar hugmyndir og vísur fæðast eins og á færibandi. Farið var með rútu og félagar tíndir upp á leiðinni. Gert var ráð fyrir að Flelga framkv.stj. UDN hiði við kaupfélagið i Saurbæn- um. í kaupfélagi munum taka tökum tápi prýdda unga dalamær. Síðan eins og andskotinn við ökum alla leið á Núp í vestri fjær. I fótboltakeppninni reyndist þessi „tápi prýdda“ knáust allra enda fékk hún verðlaun fyrir best- an leik. Þá kom þessi: Stefnumótið nú er löngu liðið reyndist þarna boltakona frá. Á Egils Heiðars enni setti miðið af afli knöttinn sendi og kappinn lá. Margar fleiri fæddust en vegna birtingatregðu ritstj. og plássleysis lærðu menn þær bara utanað og verða ekki fluttar nema munn- lega. Margrét, Þóra og Sofíía. 'tW 1 ív 1 xflf ■ Jf § W Hópurinn viö farkostinn. SIQNFAXI 25

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.