Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1985, Side 30

Skinfaxi - 01.06.1985, Side 30
Valur tóbaksnautnarinnar Siguröui Áinason Nútímamenn vita að það er óhollt að reykja. Áróðurinn gegn reykingunum fer vaxandi og er eðlilegur því reykingamenn deyja unnvörpum fyrir aldur fram og greiða þannig dýru verði nautn sina. Talið er að í Bandaríkjunum deyi á ári hverju 300.000 (þrjú- hundruð þúsund!!!) manns fyrir aldur fram af völdum reykinga. Við Islendingar erum 1000 sinn- um færri en Bandaríkjamenn og þar með er sambærileg tala meðal íslendinga um 300 manns. En þar eð íslenskir karlmenn reykja að jafnaði minna en bandarískir þá er valur tóbaksnautnarinnar sennilega nokkru minni hér á landi. En þrátt fyrir vaxandi þekk- ingu og áhuga heilbrigðisyfir- valda á vandamálum, sem af tóbaksnautninni stafa, þá er enn langt i land að þeim sé sinnt sem skyldi. Þannig verða hjákátleg í smæð sinni það fjármagn og sá mannafli sem vinnur gegn tóbak- inu t.d. miðað við ógrynni liðs og fjár, sem fer í umferðarfræðslu og slysavarnir. Þó deyja ári hverju 6 sinnum fleiri fyrir aldur fram af völdum tóbaks en látast af slys- Hættuleg efni í tóbaksreyk Þúsundir efnnsambandn eru i tnbaks- reyk. m. a. elni þnu sem upp eru talin hér á eftir og ýmist er fullvist. líklegt talið eða mögulegt að stuðli að skaðlegum áhrifum reykinga. (Hér eru slik efni pö ekki tæm- andi talin). Langflest cr pau að finna á skrá Oryggiseftirlits rikisins um markgildi fyrir hættuleg efni og citurefni i andrúmslolti á vinnustöðum. Acetaldchyð Formaldehyð Acrylonitril Hydrazin Akrblein Kadmium Ammoniak Kolsyrlingur Benspyren Kresól Blasyra Kotnunarelnisoxið Brennisteinsvctni Nikkelsambond Catechol Nikótin DDT Pyridin Oimetylnitrosamin ..T(ara" Endrin Uretan fenol Vmylklorið förum hér. Með þessu er ég að sjálfsögðu ekki að gera lítið úr mikilvægi slysavarna, fjarri fer því. Þær þarf fremur að auka en minnka. Stjórnmálamönnum og fjár- málamönnum er tíðrætt um „ágóðan af tóbakseinkasölu ríkisins“, og einblína á sjóð ÁTVR og sjá hvernig þeir aukast eftir því sem tóbaksnautamenn stunda naut sína ákafar. Sjö- hundruð milljónir króna komu í sjóðinn á síðasta ári. En er ágóð af tóbakssölu? Bandaríkjamenn hafa reiknað út, að aukakostnaður heilbrigðis- og félagsmála við hvern sígarettu- pakka sem reyktur er er um 110 cent eða um 45 krónur íslenskar. Sígarettupakkinn kostar nú að jafnaði um 70 kr. og 25% er inn- kaupsverðið. Ágóðinn í ÁTVR tapast því í heilbrigðiskerfinu og drjúgt meira. En það sem meira er, eiturverk- anir tóbaksnautnarinnar bitna ekki einungis á þeim sem nautn- ina stunda. Fóstur reykjandi mæðra þroskast að jafnaði verr í móðurkviði, eru léttari við fæð- ingu og gengur ver gegnum fæð- inguna (þ.e. meiri hætta á að barnið deyi í sambandi við fæð- inguna). Fósturlát eru algengari meðal kvenna sem reykja um meðgöngutímann. Ef móðir (for- eldrar) reykir á heimili og innan- um börnin þá aukast líkur til muna á því að börnin fái öndun- arfærasjúkdóma og eyrnabólgur. Einnig er mun algengara að börn reykingafólks fari að reykja þegar fram líða stundir. Konur sem eiga sér eiginmenn sem reykja, hafa hærri tíðni á berkjubólgu og lungnakrabba- meini enda þótt þær reyki ekki sjálfar. Og þannig mætti lengi telja. Það er því augljóst að reyking- ar eru ekki einkamál þeirra sem reykja. Þær bitna bæði á heilsu- fari og fjárhag annarra. Sam- félagið á því með fræðslu og regl- um að takmarka reykingar að fremsta megni, og iniða að því að tóbaksreykingar verði jafna sjaldgæfar og fráhrindandi og notkun annarra fíkniefna. 30 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.