Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 15
LYFTINGAR
Norðurlandamótinu, þá var hann
59,85 kg og lyfti 75 kg í snörun og
90 kg í jafnhöttun.
Ingi Valur á íslandsmet í bekk-
pressu í 60 kg flokki drengja, lyfti
80 kg. Hann hafnaði í tjórða sæti á
Norðurlandamótinu þegar hann
lyfti 95 kg í snörun og 120 kg í
jafnhöttun og var þá 66,85 kg. Þeir
félagar eru á stöðugri uppleið og á
íslandsmeistaramótinu sem haldið
var á Akureyri 14. mars síðastlið-
inn bættu þeir árangur inn um 10-
15 kg á aðeins þremur mánuðum.
Ingi Valur sigraði í 75 kg flokki,
hann lyfti 100 kg í snörun og 130
kg í jafnhöttun. Vilhjálmur sigraði
í-67,5 kg flokki og lyfti 80 kg í
snörun og 95 kg í jafnhöttun.
*
Iþróttamiðstöðin er opin sem hér segir í sumar
Mánudaga - Föstudaga
Laugardaga' og Sunnudaga
kl. 07.00
kl. 12.00
kl. 14.00
kl. 19.00
kl. 09.00
10.00
13.00
17.30
22.00
16.00
Tveir glaðbeittir, Vilhjálmur Þór og
lngi Valur.
Hver er munurinn á ólympískum
lyftingum og kraftlyftingum ?
„Við beitum meiri tækni og
þurfum að nota meiri snerpu held-
ur en kraftlyftingamenn og allir
líkamshlutar þurfa að vinna vel
saman við hverja lyftu. Við æpum
með keppni í huga og tökum
stefnuna á ÓL 1996, en kraftlyft-
ingamenn eru að trimma”.
Tiltölulega fáir stunda ólympískar
lyftingar hér á landi. Nokkrir
stunda œfmgar á Akureyri, í Reykjavík
og svo í Borgarnesi. Af hverju er áhug-
inn svona lítill?
„Það hefur ekki verið staðið nægi-
lega vel að uppbyggingunni síðastliðin
tíu ár. Milli 1970 og 1980 var mikill
uppgangur, en síðan þá hefur íþróttin
dalað. Það þarf að kynna þessa íþrótt
betur.
Sundlaug - Saunabað
Heitur pottur - Ljósabekkur
Þrekaðstaða - Leiðbeinandi
Vatnsleikfimi - Leiðbeinandi
Nudd og trimmform - Lærður nuddfræðingur
íþróttasalur - Eróbikksalur
Trimmklúbbur - Leiðbeinandi
Ungbarnasund - Leiðbeinandi
Ath. Sundæfingar hætta 17. júlí og er sundlaugin opin frá 07.00-13.00 og 14.00-22.00
virka daga eftir þann tíma, einnig laugardaga og sunnudaga frá kl. 9.00-16.00
VERIÐ VELKOMIN !
Tómstundaráö Borgarnesbæjar
íþrótta-ogæskulýösfulltrúi.
Skrifstofa Borgaihraut 11. S: 93-71224
Hvaða augum lítið þið lyfjaneyslu?
„Það er mjög slæmt fyrir lyftingaí-
þróttina að lyljaneysla hefur komið upp
innan hennar hér á landi. Þó er ágætt að
þetta sé komið fram í dagsljósið svo hægt
sé að taka á vandamálinu. Fræðslan unt
skaðsemina þarf að vera meiri. Við viss-
um t.d. nákvæmlega ekki neitt nú um á-
hrif lyfjaneyslu, ef íris hefði ekki verið
nteð sérstaka fræðslu um þessi mál. Við
vitum að við þurfum ekki að taka lyf til
þess að ná árangri,” voru samróma loka-
orð Inga Vals og Vilhjálms.
Skinfaxi
15