Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 37
UMHVERFISVERND
Umhverfisvernd til frambúðar
Hefur þú hugleitt hvað það er
sem spillir náttúru og umhverfi
íslands? Hefur þú hugleitt hvað
það er sem þú getur gert til þess
að stemma stigu við mengun?
Við íslendingar erum stoltir af því að
eiga hreina og óspillta náttúru, við önd-
um að okkur hreinu lofti, getum drukkið
hreint vatn og borðað ómengðan ís-
lenskan mat. Því miður eru margir sem
hafa ekki gert sér grein fyrir því að nátt-
úra landsins getur ekki haldist óspillt án
þess að nokkuð sé að gert. Það erum við
sem verðum að breyta hugsunarhætti
okkar hvað varðar óþarfa neyslu og inn-
kaup á vörum og notkun á bílnum. Við
verðum að athuga hverju við hendum í
ruslafötuna. Ákveðin efni mega ekki
ganga í samband við lífkeðjuna því það
hefur hættuleg áhrif á umhverfið, heilsu
okkar og afkomenda okkar. Þetta er í
raun einfalt í framkvæmd og ef allir taka
höndum saman leiðir það til þess að við
getum stemmt stigu við þeirri hættulegu
þróun að landið verði mengun að bráð.
Innkaup
Þegar þú verslar næst skaltu hugleiða
hvort þær vörur sem þú velur geti á ein-
hvern hátt haft skaðleg áhrif á umhverf-
ið.
Veldu frekar vörur sem ekki eru
einnota, t.d. flöskur í stað dósa, keyptu
ekki pappadiska eða glös og veldu vörur
sem eru í margnota umbúðum. Kvartaðu
við kaupmanninn ef þér finnst vörunum
pakkað inn í óþarflega miklar plastum-
búðir sem skaða umhverfið. Veldu end-
urunnar pappírsvörur, óbleiktar og klór-
fríar, þegar þú kaupir t.d. kaffipoka,
klósettpappír, eldhúsrúllur, bleiur, skrif-
pappír, umslög, stílabækur, ljósritunar-
og tölvupappír og eggjabakka. Bentu
öðrum á að gera slíkt hið sama. Lestu á
umbúðir þvottaefna og veldu þau sem
innihalda sem minnst af hættulegum
efnum; bleikiefnum, ilmefnum, fosföt-
um og mýkingarefnum sem takmörkuð
þörf er fyrir. Notaðu sem minnst af
þvottaefnum, hvort heldur sem er í
þvottavélina, uppþvottinn eða ræstingar-
vatnið.
Skilagjaldsvörur
Umbúðir utan af öli, gosdrykkjum og
áfengi má ekki henda í ruslatunnuna.
Þessar umbúðir er hægt að selja til end-
urvinnslu eða endurnýtingar. Leitaðu
upplýsinga í þínu sveitarfélagi um það
hvert þú getur komið þessum umbúðum
svo þær lendi ekki í tunnunni.
Bíllinn
Sparaðu bílinn, útblástur bflsins
mengar andrúmsloftið. Hafðu bílinn
ekki í gangi ef þú þarft að bíða fyrir
utan verslanir eða skreppa út til þess að
ræða við fólk. í Þýskalandi er bannað að
hafa bíla í gangi meðan beðið er eftir
rauðu ljósi. Það er líka miklu heilsusam-
legra að ganga sé þess nokkur kostur.
Að henda í ruslið
Til eru fjölmörg efni sem ekki má
henda í ruslafötuna, því þá eiga þau
greiða leið að fæðukeðjunni. Rafhlöður
innihalda ýmis hættuleg efni sem geta
valdið tjóni á heilsu manna og umhverfi.
Ef þú þarf að losna við rafhlöður getur
þú farið með þær á næstu bensínstöð, en
í einstökum verslunum eru líka söfnun-
arbox sem taka við þeim. Skilaðu göml-
um lyfjum í næsta apótek frekar en að
henda þeim.
Garðaúrgangur
Vissir þú að úrgangurinn úr garðin-
um þínum er fyrirtaks áburður? Allan
lífrænan úrgang úr garðinum getur þú
nýtt til þess að búa til góða gróðurmold.
Það sem þú þarft að gera er að útbúa
sérstakan kassa fyrir garðúrganginn í
einu horni garðsins. Þangað setur þú
þann úrgang sem safnast saman við
garðhreinsunina. Og það sem meira, er
þú getur sett kaffikorginn, grænmetisaf-
ganga, telauf, eggjaskum, ávaxtaleifar
og fleiri lífræn efni í safnhauginn. Ef þú
gerir þetta þá minnkar ruslið hjá þér og
þú getur sparað þér að kaupa áburð sem
er alls ekki eins góður.
Umhverfisvernd í Þjón-
ustumiðstöð UMFÍ
Tímaritið Skinfaxi og Fréttabréf
UMFÍ eru prentuð á umhverfisvænan
pappír, sem uppfyllir strangar kröfur
sænskra umhverfisverndunarsamtaka
um að takmarka notkun klórefna í papp-
írsmassanum. Við kaupum endurunninn,
klórfrían og óbleiktan pappfr til notkun-
ar á skrifstofunni og endurunninn hrein-
lætispappír til notkunar á salemum og í
eldhúsi. Söfnum notuðum pappír, dós-
um og flöskum og fömm með í endur-
vinnslu. Ef fatnaður er skilinn eftir í
gistingunni förum við með hann til
Rauða kross íslands ef eigandi hans
fínnst ekki. í einu horni garðsins er
kassi fyrir garðúrganginn og hann kem-
ur sér vel á vorin þegar borið er á.
Tökum öll höndum saman og
stuðlum að verndun umhverfís-
ins, það tekst ekki nema allir
hjálpist að.
Birgi Þórðarsyni hjá Hollustuvemd ríkisins
eru fœrðar þakkir fyrir aðstoðina.
Krœkiberin hrein holl ogfögur, verða þau það áfram? Ljósm. B.Þ.
Skinfaxi
37