Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 13
BADMINTON
Þeir yngri taka mig ekki á úthaldinu
Einn af upphafsmönnum bad-
mintoníþróttarinnar í Borgarnesi
er Albert Þorkelsson. Hann spilar
enn, að verða sjötíu ára gamall.
Albert er Siglfirðingur og byrjaði að
skíða snemma og með þeim byrjaði í-
þróttabakterían að virka. En í Borgar-
nesi gat hann ekki stundað skíðin, en
það varð ekki til þess að aftra honum frá
því að stunda íþróttir. Hann byrjaði að
kenna unglingunum badminton í Borg-
arnesi um 1970.
„Ég er bakari og hafði lítið að gera á
kvöldin svo ég fór í þetta, svona tvisvar
til þrisvar í viku. Badminton er mjög
góð íþrótt og ég ætla að halda áfram
eins lengi og ég get. Ég spila líka golf
og hef gert það síðastliðin tuttugu ár.”
Forvarnarstarf
Uppbygging íþróttamannvirkja
hjá bæjar- og sveitarfélögum er
misjafnlega á veg komin. Borg-
arnesbær er eitt þeirra bæjarfé-
laga sem hefur lagt mikla á-
herslu á að geta veitt bæjarbú-
um og nærliggjandi sveitarfé-
lögum sem flest og fjölbreyttust
tækifæri til þess að stunda í-
þróttir. Indriði Jósafatsson er í-
þrótta- og æskulýðsfulltrúi í
Borgarnesi. Hann var inntur eftir
framgangi bæjaryfirvalda varð-
andi íþrótta- og æskulýðsstarf
og fréttum af undirbúningi
vegna 22. Landsmóts UMFÍ i
Borgarnesi 1997.
Hvert er mikilvœgi íþrótta í uppeldi
unglinga og hver er stefna Borgarnes-
bœjar í íþrótta- og œskulýðsmdlum á
komandi árum?
„Það hlýtur að vera stefna allra bæj-
ar- og sveitarfélaga að styðja vel við
bakið á íþrótta- og æskufólki. Með því
er verið að vinna forvarnarstarf gegn
þeim freistingum sem annars bíða barna
og unglinga á götum úti. Það ætti að
vera betra fyrir foreldra að vita fyrir víst
að barnið þeirra er í skipulögðu íþrótta-
eða félagsstarfi og þá geta veita foreldr-
ar vitað fyrir víst hvar barnið er og hvað
það hefur fyrir stafni.
Hvaða íþróttagrein finnst þér henta
eldrafólki best?
„Það fer eiginlega eftir því á hverju
það byrjar, ég held að það sé best að
halda áfram að stunda þá grein sem fólk
kann best tökin á. Það er vont að byrja
að stunda einhverja grein mjög seint á
aldursskeiðinu, en það er um að gera að
halda áfram eftir að maður er byrjaður.”
Finnst þér eldra fólk orðið fróðara um
nauðsyn hreyfingar?
„Það er ekki efamál. Hér í Borgar-
nesi eru flestir þeir eldri í golfinu.
Ég er sá elsti í bandmintoni og þeir
yngri mega hafa sig alla við til að hafa
við mér,” segir Albert og er brosir breitt.
„Það ættu allir að byrja að stunda
einhverjar íþróttagreinar, byrja bara ró-
Ég lít þannig á að næstuni allir sem
eru í íþróttum stundi þær af félagslegri
þörf, en ekkert endilega að þeir ætli sér
að verða landsliðsmenn með beinan
keppnisárangur í huga. Eflaust blundar
hann þó í okkur öllum. Því er mikilvægt
fyrir bæjarfélögin að hjálpa þeim félög-
um á viðkomandi stað sem sjá um starf-
semi sem þessa. Skapa þeim góða að-
stöðu til þess að böm og unglingar velji
helst íþróttir og félagsstörf frekar en
eitthvað annað.
Segja rná að sú aðstaða sem boðið er
upp á hér í Borgarnesi sé mjög góð mið-
að við stærð bæjarins en miðað við þá
aukningu sem orðið hefur í íþróttum hér
í bæ á síðustu árum er aðstaðan að verða
of lítil. Staðreyndin er sú að um helrn-
ingur bæjarbúa sækir skipulagða þjálfun
lega og halda svo áfrant. Þetta er gaman,
manni líður vel og ég fullyrði að ég
hefði ekki þetta úthald sem ég hef ef ég
væri ekki í þessari hreyfingu. Það er al-
veg ábyggilegt að þessir yngri taka mig
ekki á úthaldi,” sagði Albert að lokum
og hafði engan tíma til þess að spjalla
meira því þeir yngri biðu eftir að fá
hann í slaginn.
og æfingar á vegunt íþróttamiðstöðvar-
innar eða ungmennafélagsins amk.
tvisvar í víku og suntir alla daga vikunn-
ar og þá er skólaleikfimi ekki meðtalinn.
Með tilkomu félagsmiðstöðvar fyrir
unglinga sern tekin var í notkun fyrir
tveim árum stórlagaðist félagslíf ung-
linga í Borgarnesi,” sagði Indriði.
Ungmennasamband Borgarfjarðar
hyggst halda 22. Landsmót UMFÍ í
Borgarnesi 1997, er undirbúningur haf-
inn?
„Eins og málin standa í dag, þá eru
bæjaryfirvöld að kanna kostnað við að
halda landsmótið í samráði við stjóm
UMSB .
Ég lít svo á að þau mannvirki sem
þarf að byggja upp vegna landsmótsins
sem slíks komi hvort sem er upp í Borg-
arnesi á næstu árum hvort sern lands-
mótið verður haldið hér eða ekki.
Auðvitað ntyndi landsmótið flýta fyr-
ir framkvæmdum á þessu sviði og að-
staðan kæmi fyrr en ella. Ég álít hins
vegar að landsmótið sjálft sé orðið allt
of viðamikið og of margar greinar tekn-
ar fyrir á því.
Þetta veldur því að smærri sveitarfé-
lög hrís hugur við þeim miklu mann-
virkjum sem byggja þarf upp á stuttum
tíma í stað þess að reyna að miða grein-
ar við þá aðstöðu sem hver staður hefur
upp á að bjóða, sagði Indriði.
og Landsmót í Borgarnesi 1997
Skinfaxi
13