Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1999, Page 8

Skinfaxi - 01.02.1999, Page 8
Jón Sævar Þórðarson Stökkmót Reynis Reynismaðurinn Jón Sævar sá að mestu um framkvæmd stökkmóts Reynis sem haldið var á Akureyri. Jóhann Ingi Árnason settist niður með Jóni af afloknu glæsilegu móti Eg átti hugmyndina að þessu móti og hún kom kannski fyrst og fremst til þar sem öll aðstaða fyrir svona mót er fyrir hendi á Akureyri. íþróttahúsið er að mörgu leyti ágætt fyrir ákveðnar greinar þrátt fyrir að ekki sé hægt að keppa þar í hlaupi. Þessar stökkgreinar sem keppt var í pössuðu vel og það yrði til dæmis vel hægt að bæta kúluvarpi við í framtíðinni ef áhugi væri fyrir hendi.” Þá yrði að breyta nafninu? ,,Já, þá yrði nafnið kannski Stökk- og kastmót Reynis.” Nú hafa svipuð mót verið haldin í Reykjavík er fyrirmyndin stolin þaðan? ,,Þau mót hafa gengið mjög vel og ég viðurkenni alveg að það hafi haft áhrif á ákvörðunartöku okkar um að halda Stökkmótið. Það er hins vegar langt síðan við fyrir norðan byrjuðum að halda frjálsíþróttamót innanhúss í þessum klassísku handboltahúsum. Það var því búið að gera þetta áður og við Reynismenn höfðum tvívegis verið aðilar að mótum þar sem útbúa hefur þurft til dæmis sandgryfjur innanhúss. Við höfum hins vegar aldrei áður þurft að búa til braut fyrir stangarstökkið en þar sem stokkurinn fyrir stöngina er svo nálægt veggnum þurftum við að þessu sinna að smíða upphækkaða atrennubraut fyrir stöngina.” Telur þú að það sé erfiðara að halda svona stórmót fyrir norðan heldur en á Reykjavíkursvæðinu? ,,Það hefði auðvitað geta orðið ófært en það þýðir ekkert að vera spá í það. Ég kveið hins vegar engu hvað varðaði starfsmannahald en neitt þess háttar. Ég treysti Reynismönnum fullkomlega til að sjá um undirbúninginn og það var ekkert sem fór úrskeiðis.” En kostnaðarhliðin, hvernig kemur mótið út fjárhagslega? ,,Þetta er auðvitað mjög dýrt en þar sem ég hef ekki séð um peningamálin treysti ég mér ekki til að segja hversu mikið þetta kostaði - ég get hins vegar fullyrt að þar er um talsverðar upphæðir að ræða.” Var erfiðara fyrir ykkur að fá styrktaraðila fyrir mótið en ef það hefði verið haldið á Reykjavíkursvæðinu? „Nei, ég held að það hafi nú ekki skipt sköpum. Við vorum hins vegar ekki með beina útsendingu frá mótinu og það hafði nokkuð að segja. Það var ekkert stórkostlegt vandamál að fá styrktaraðila þrátt fyrir að þeir hefðu auðvitað mátt vera fleiri.” Er þetta ekki mikil áhætta fyrir eins lítið félag og Reyni að halda mót þar sem kostnaðurinn veltur á milljónum? „Auðvitað er alltaf áhætta sem fylgir því að framkvæma eitthvað stórt og skemmtilegt. Hefði allt farið á versta veg hefði auðvitað einhver þurft að borga brúsann en ég held að mér sé óhætt að segja að þetta hafi komið ágætlega út fjárhagslega.” Nú voru stórstjörnur á borð við Erki Nool sem mættu til leiks. Er erfitt að fá stór nöfn úr heimi frjálsíþróttanna til að mæta hingað og keppa? „Já og nei. Það hjálpar til að við erum með góða íþróttamenn sem við getum boðið þeim að keppa við. Fjölþrautakappamir eru allir góðir vinir og þeir þekkja Jón Arnar og finnst bara gaman að koma og keppa við hann á hans heimavelli. Stelpurnar í stönginni eru líka mjög framarlega og því ekki erfitt að fá keppendur gegn þeim. Hitt er svo annað mál að þetta kostar allt peninga.” En er erfitt að fá íslensku keppendurna, til dæmis Völu og Þóreyju sem nú búa í Svíþjóð, til að koma heim og keppa? „Eins og flestir vita eru þær styrktar af afreksmannasjóði og ég held að þeim finnist nú mjög eðlilegt að þær komi heim öðru hvoru og keppi. Ég held líka að þær hafi bara gaman af því að koma heim og hingað til hefur það alla vega ekki verið neitt vandamál. þetta má hins vegar ekki frekar en neitt annað ganga út í neinar öfgar en á meðan þetta er innan skynsamlegra marka tel ég þetta ekki vera neitt vandamál fyrir þær.” Ég get hins vegar fullyrt aö þar er um talsverðar upphæðir að ræða Ég held að þær hafi nú bara gaman af því að koma heim

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.