Skinfaxi - 01.08.2000, Side 6
UMFÍ er ekki
segir Sigurður Geirdal bæjarstjóri
Kópavogs og fyrrum framkvæmda-
stjóri Ungmennafélags íslands
Sigurður Geirdal hefur setið sem
fastast í bæjarstjórastóli Kópavogs
sl. tíu ár og flestir landsmenn
þekkja hann þaðan. Færri vita hins
vegar að í 16 ár gengdi hann
framkvæmdastjórastarfinu hjá
UMFÍ þar sem hann, að margra
mati, reif hreyfinguna upp á ásamt
fyrrum formanni UMFÍ Hafsteini
Þorvaldssyni.
Sigurður er fæddur í Grímsey en sem ungur maður
ferðaðist hann víða, hann fluttist til Siglufjarðar, síðan
var hann í sveit í Fljótunum, þaðan fór hann í Reykholt í
skóla og svo lá leiðin í Bifröst. Eftir að hafa þvælst um landið
skoðaði hann heiminn þar sem hann eyddi nokkrum árum m.a.
Þýskalandi og Danmörku en eftir öll þessi ferðalög endaði hann
á höfuðborgarsvæðinu. Hann var virkur í starfi
Ungmennafélagsins Breiðabliks og er í dag heiðursfélagi en
hvers vegna fór hann að starfa fyrir ungmennafélags-
hreyfinguna?
frjálsíþróttadeildar Breiðabliks. Sú deild var nánast dauð þegar
ég tók við og það má því segja að það hafi verið mitt fyrsta
verkefni hér í bænum að koma þeirri deild af stað að nýju. Mér
tókst, ásamt nokkrum góðum mönnum, að byggja upp ágætis
frjálsíþróttalið sem tók meðal annars þátt í Landsmótinu á
Laugarvatni árið 1965. í millitíðinni var ég líka orðinn formaður
Breiðabliks og verkefni mitt þar var að endurskipuleggja félagið
og búa til lið sem gat unnið saman á Landsmótinu á Laugarvatni.
Mér fannst þetta mjög spennandi og skemmtilegt verkefni á
þeim tíma og ég held að það hafi tekist nokkuð vel."
„Ég var nú alltaf mikið í íþróttum og þegar ég flutti hingað Svo í franihaldi af því tekur þú viö framkvæmdastjórastarfinu hjá
þróuðust málin þannig að ég var strax orðinn formaður Ungmennafélagi Islands?