Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2000, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.08.2000, Blaðsíða 7
„Já, árið 1970 tek ég að mér starf sem framkvæmdastjóri UMFÍ. Hafsteinn er kosinn forinaður og hann var niikill dugnaðar- maður og hans markmið var að rífa hreyfinguna upp af værum blundi. Ein aðalástæðan fyrir því að hann valdi mig sem framkvæmdastjóra, sagði hann mér síðar, var efni greinar sem ég hafði skrifað í Skinfaxa einhvern tíma milli 1965 og 1970. Þessi grein varð til þess að honum fannst hann endilega þurfa að hafa upp á mér og fá mig með sér í starfið." Þið áttuð svo mikið verk fyrir höndum var það ekki? „Þetta var nú allt miklu minna þegar ég og Hafsteinn hófum okkar vinnu. Á þessum tíma var UMFÍ með alla starfsemina í einu litlu herbergi en það var ekki það sem skipti máli. Við lögðum af stað með það markmið að koma starfsemi hreyfingarinnar aftur af stað út um allt land og mynda virkilega öflugt landssamband. Til þess að gera það þurftum við að komast í samband við fólkið í landinu og taka upp ný vinnu- brögð sem væru í takt við tímann. Það var okkar mat að við þyrftum að hitta fólkið áður en við gætum ætlast til þess að það færi að vinna með okkur. Ég og Hafsteinn fórum þess vegna á hvern einasta fund sem við mögulega komumst á og ferðuðumst landshornanna á milli til að mæta á héraðsþing og til að byggja upp samband við ungmennafélaga um allt land. Og ekki má heldur gleyma því að við vorum ekki einir um þetta, það voru úrvalsmenn í stjórn UMFI á þeim tíma sem ég vann þar og þeir tóku allir meira og minna þátt í þessu með okkur."

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.