Skinfaxi - 01.08.2000, Page 14
Fimmtudaginn 12. október var haldin ráðstefna
ungs fólks í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ráðstefnan
var þriðji og síðasti liðurinn í forvarna-
verkefninu Loftskipið á vegum UMFÍ og
áætlunarinnar ísland án eiturlyfja, styrkt af áfengis-
og vímuvarnarráði. Á ráðstefnunni var leitast við að
varpa Ijósi á allt það sem unglingar eru að gera sér til
dundurs á landinu í dag. I undirbúningsnefnd
ráðstefnunnar
störfuðu sex
ungmenni frá
landinu öllu.
Þau, ásamt verk-
efnisstjóra,
mótuðu dagskrá
og önnuðust alla
skipulagningu
jafnframt því sem
þau komu fram í
fjölmiðlum fyrir
hönd ráð-
stefnunnar.
Auður: Mér fannst þetta frábær hugmynd,
eitthvað annað en gamla lumman „þú skalt ekki
drekka" sem er búin að dynja á manni síðan í 7. bekk.
Að fá að taka þátt í svona er ekki bara mikill heiður,
heldur líka mjög lærdómsríkt og síðast en ekki síst
ógeðslega gaman... svo var þetta líka bara svo flott
ráðstefna. Eg er stolt.
myndbandstækinu var ekki nógu gott og fjarfundabúnaðurinn virkaði ekki
vegna símstöðvarinnar í Ráðhúsinu þannig að 17 manns á Egilsstöðum og
Isafirði þurftu frá að hverfa. En einhvernveginn hafðist þetta með hljóðið og
áfram var haldið.
Greipur: „Jeg tarf ekki sjuss" var okkar aðferð til að beina kastljósinu að því
sem ungt fólk er að gera skemmtilegt um land allt. Ég tel að þetta hafi tekist
framúrskarandi vel og tek fram að þetta er byrjunin, nú fyrst hefst verkefnið.
Undirbúningurinn var ánægjulegur og
gaf mér helling. Ég vona að allir fái
einhvern tíma tækifæri til að prófa
eitthvað þessu líkt!
Við höfðum tvo kynna frá Isafirði, þau
Ingvar og Dísu, sem héldu utan um
ráðstefnuna eins og hetjur. Þau voru
með fyrirfram skrifað handrit sem var
mjög fyndið. Ráðstefnan hófst með því
að atriðið úr Stellu í orlofi, sem titillinn
vísar í, var sýnt. Gleðisveitin frá ísafirði
tróð upp eftir stutta kynningu á Gamla
Apótekinu, ísafirði. Þeir kitluðu einnig
hláturtaugar gesta með fyndnum textum
og skemmtilegri sviðsframkomu og mæla aðstandendur ráðstefnunnar
eindregið með þeim í brúðkaup og aðrar skemmtanir. Auk þeirra kom fram
ung stúlka, Þórunn Gréta, frá Austur-Héraði og sagði frá lífinu þar, Jóhann
Fjalar úr ungmennafélaginu Fjölni kom með skemmtilegt sjónarhorn á
þátttöku í íþróttum, fulltrúar Ungmennahreyfingar Rauða krossins sögðu frá
sínu starfi og svo mætti lengi telja.
Að morgni 12. október var kominn smá
frumsýningarskjálfti í liðið. Dagskráin var til staðar
en hafði aldrei verið keyrð í gegn í samfelldri heild
þannig að margt gat farið úrskeiðis. Við vorum
komin niður í Ráðhús á hádegi og hófumst handa við
að raða upp. Það kom í ljós að hljóðið úr
Inga Berglind: Mér fannst virkilega gaman að taka þátt í þessari ráðstefnu
og ég held að ég hafi lært alveg heilmikið af því.
Það sem var ekki á dagskrá en vakti mikla lukku var leikhópurinn Lago frá
Grindavík. Þau voru um 10 talsins og blönduðu sér meðal áhorfenda. Þau
voru með óvæntar uppákomur nær allan tímann án þess þó að trufla
ráðstefnuna. GSM-símar hringdu þegar minnst varði og undarlegar samræður