Skinfaxi - 01.08.2000, Blaðsíða 20
Undirbúningur fyrir 23. Landsmót UMFÍ er nú í
algleymingi. Mótið verður haldið á Egilsstöðum helgina
12-15 júlí á næsta ári. I sumar hafa staðið yfir
framkvæmdir við íþróttamannvirki á svæðinu og verður
lokahönd lögð á frágang þeirra nú í haust.
Byggt hefur verið við íþróttahúsið á Egilsstöðum og nýtt
gólfefni verið lagt á það. Þar með er íþróttahúsið komið í röð
stærstu og glæsilegustu íþróttahúsa landsins. Miklar fram-
kvæmdir hafa jafnframt átt sér stað við frjálsíþróttavöllinn. Áhorf-
endasvæði hafa verið endurbyggð og byggt hefur
verið vallarhús sem mun hýsa stjórnstöð og
tímatökubúnað auk búningsaðstöðu fyrir
keppendur. Mestar hafa þó fram-
kvæmdirnar verið við hlaupabrautirnar.
Völlurinn hefur nú á að skipa 6
tartanlögðum hlaupabrautum og eru 4
þeirra upphitaðar. Frjálsíþróttavöllurinn
á Egilsstöðum stendur í ákaflega fallegu
umhverfi, aflokaður með hamravegg á
austurhlið, en trjágróðri úr suðri og vestri
Vallarstæðið og sú aðstaða sem í boði er á Egilsstöðum
gerir þetta frjálsíþróttasvæði eitt það alglæsilegasta á landinu og
þótt víðar væri leitað.
útisundlaug, 9 holu golfvöllur í stórbrotnu umhverfi, aðstaða til
siglinga á Lagarfljóti og keppnisaðstaða fyrir bæði hestaíþróttir og
skotfimi. Það er því ljóst að 23. Landsmót UMFÍ 2001 mun verða
haldið við bestu hugsanlegu aðstæður á Egilsstöðum. Það er því
full ástæða til þess að hvetja öll aðildarfélög til þess að fara að
huga að þátttöku sinni á mótinu.
Upplýsingar fengnar á heimasíðu Landsmótsins á Egilsstöðum.
Slóðin á heimasíðuna er: www.landsmot2001.is
Með þeim fram-
kvæmdum sem ráðist
hefur verið í, verður aðstaða til
íþróttaiðkunar á Egilsstöðum eins
og best gerist. Fyrir er á staðnum ný og glæsileg 25 metra
/ÍT-/Æ jF/7/l&S-n7/7//Af