Skinfaxi - 01.08.2000, Side 27
lærdómsríkt. Mín dvöl stóð í sex
ánægjulegar vikur. Það var
eitthvað um að vera hvern
einasta dag eins og ég hef nefnt
dæmi um hér að ofan. Fyrir þá
sem kunna að meta góðan mat
er þetta líka eitthvað spennandi,
allir þessir nýju réttir sem maður
hafði aldrei smakkað áður, svo
Var líka ansi oft farið út að borða.
Maður kynnist mörgu nýju fólki,
Svíum og öðrum sem ferðast á
vegum IFYE. Helsti kosturinn
við þennan ferðamáta er að
maður er aðeins hjá hverri
fjölskyldu í tvær vikur og með
þessu móti kynnist maður stærri
hluta landsins. Hver fjölskylda
leggur sig líka alla fram um að
sýna manni eitthvað nýtt á
hverjum degi og sjá til þess að
maður njóti dvalarinnar.
Vmislegt mátti þó betur fara.
Skipulagi og upplýsingaflæði
var því miður nokkuð ábótavant.
Persónulega hafði það lítil áhrif á
mig, þetta gerði bara ferðina
meira spennandi, en öðrum sem
voru þarna á vegum IFYE fannst
þetta mjög miður. Það hefur líka
sína galla að maður er svona
stutt hjá hverri fjölskyldu, því
þegar maður er farinn að
kynnast henni og farið að líka vel
við hana, þarf maður að fara frá
þeim til annarrar fjölskyldu sem
maður hefur ekki hugmynd um
hvernig er
Hvers vegna að fara ?
Þetta er eitthvað sem flestir
ættu að prófa. Hér færðu að
ferðast um landið og býðst
einnig að ferðast sjálfur um
Evrópu í tvær vikur ef þú vilt.
Eftir svona ferð þekkirðu landið
Vel, jafnvel betur en heima-
maðurinn. Þetta er örugglega
h'ka það ódýrasta sem þú getur
fundið.
Vonandi á þessi starfsemi
eftir að þróast áfram þannig að
maður geti líka farið til Ameríku
°g annarra heimsálfa. Að lokum
vil ég benda á að með því að
skrifa IFYE í Altvista leitar-
vélinni er hægt að fá margar
ahugaverðar síður um IFYE.
Stefán Karl Sævarsson
Hvet aðra til
að gera slíkt
hið sama
Ég heiti Ingunn Eir Andrésdóttir og ég er 17
ára gömul og bý á Eskifirði. Ég er nýkomin
heim frá Noregi, þar sem ég var IFYE. IFYE
stendur fyrir International 4H Youth
Exchange. Ég var sem sagt skiptinemi þar í 6
vikur, fór út þann 2. júlí og kom heim 13.
ágúst sl.
Það var bæði kvíði og spenna í mér
vikurnar fyrir brottför. Ég hafði aldrei verið
ein svona langt að heiman áður en að vísu
hafði ég verið eitt ár í Menntaskólanum á
Akureyri sem gaf mér visst forskot. Þegar ég
lenti í Noregi á nýja flugvellinum, 40 km. frá
Oslo, tók ég flugrútu til Oslo, þangað sótti
Harvard mig starfsmaður hjá 4H en það
stendur fyrir clear Head, clever Hands, clean
Heart og good Health.
4H er mjög vinsælt og virkt félag í Noregi
og flestir krakkar á aldrinum 10-18 ára eru
þar að kljást við ýmis verkefni. Þegar þau
hafa lokið við síðasta verkefnið sem 4H
meðlimir fá þau sérstaka styttu og viður-
kenningu og þá verða þau að Alumni.
Alumni eru á aldrinum 20 - 35 ára og eru
fyrrverandi 4H-meðlimir, margir þeirra hafa
verið IFYE til landa alls staðar í heiminum.
Harvard tók mig ásamt öðrum IFYE frá
Norður-írlandi sem heitir James á lítið hótel
á bak við konungshöllina, þar voru hinir 10
skiptinemarnir þegar komnir og sofnaðir því
ég var seint á ferð. Ég var með tveimur
stelpum í herbergi á hótelinu, þeim Diniu frá
Costa Rica og Hili frá Eistlandi.
Allir 12 skiptinemarnir hittust næsta dag,
ég var langyngst hin voru á aldrinum 20 - 27
ára. Það var dásamlegt veður, sól og mikill
hiti. Hópurinn var góður og við ferðuðumst
um alla Oslo, fórum á söfn, í bátsferðir,
göngutúra, Frognerparken sem er garður
fullur af fallegum, nöktum styttum og
heimsóttum lítinn bóndabæ þar sem við
hittum Kathleen sem er stjórnandi IFYE-
samtakanna í Noregi. Hún gaf okkur meiri
upplýsingar um dvöl okkar og ferðaáætlanir
um hvernig við kæmumst til fyrstu
fósturfjölskyldunnar okkar.
Fyrri fjölskyldan mín var staðsett á
bóndabýli sem er 10 km. frá litlum bæ sem
heitir Spydeberg sem er í Ostfoldsýslu. Hún
samanstóð af miðaldra bændahjónum og 18
ára syni þeirra. Þau voru vel efnuð, húsið
þeirra var mjög stórt og vinstri helmingur
þess v.ar aðeins í notkun. Þau ræktuðu korn
og grænmeti en þar voru engin dýr.
Seinni fjölskyldan mín býr í 800 manna
bæ, Kinsarvik í Hordalandsýslu, sem
staðsett, hinum megin í Noregi. Þetta var 5
manna fjölskylda, hjón, tvær dætur 16 og 23
og sonur þeirra tvítugur. Þar var einnig
mikið af dýrum. Ég var hjá þessari fjölskyldu
í tvær og hálfa viku. Dvöl mín í Noregi
endaði svo með því að ég var viku í
tjaldbúðum í Voss sem er einnig í
Hordalandi. Þar hitti ég hina skiptinemana
aftur og þá var mikið fjör og fagnaðarfundir.
Eftir dvöl mína í Noregi finnst mér ég hafa
lært heilmikið á að kynnast nýjum siðum,
ólíku fólki og öðruvísi menningu. Mér finnst
ég einnig hafa þroskast við að standa svona
mikið á eigin fótum og stóla á sjálfa mig. Ég
ferðaðist mikið ein, tók strætó, rútur, ferjur,
lestir og flug ein og allt þetta hefur aukið
sjálfstraust mitt.
Ég tel mig búa að þessari reynslu alla ævi
og sé ekki eftir að hafa prófað þetta og hvet
aðra til að gera slíkt hið sama.