Skinfaxi - 01.12.2004, Síða 6
AÐ LOKNU LANDSMÓTI
andsmót UIVIFI
er stærsta og
fjölmennasta
ttamót landsit
r haldið þriðj
hvert ár
Landsmót UMFÍ og
Unglingalandsmót UMFI voru haldin
ó Sauðórkróki í sumar eins og allir
ungmennafélagar vita. I fyrsta
skipti í sögu UMFI voru bæði mótin
haldin á sama ári. Nokkuð skiptar
skoðanir voru í ungmennafélags-
hreyfingunni hvort rétt væri að
halda bæði mótin sama árið og eins
voru efasemdir hjá mörgum hvort
rétt væri að halda bæði mótin á
sama stað. Þótt lengi megi deila
um alla hluti, þá er víst að bæði
mótin tókust afar vel hjá
Skagfirðingum og voru þeim og
ungmennafélögum til mikils sóma.
Engu að síður má alltaf halda áfram
að velta hlutunum fyrir sér og
Skinfaxi leitaði til formanns UMSS
og formanna fjögurra annarra
héraðssambanda til að heyra
viðhorf þeirra til landsmóts-
sumarsins á Sauðárkróki. Haraldur
Þór Jóhannsson formaður UMSS sat
fyrstur fyrir svörum.
Skák og mát.
Hvernig hafa Skagfirðingar það
að loknu landsmótssumri ?
Ég held þeir hafi það mjög gott,
misvel eins og aðrir. Persónulega
þá fannst mér þetta mjög strangt
sumar. Þetta var mikil vinna og mikið
skipulag og án efa mjög krefjandi
fyrir okkar félagsmenn. Annars voru
menn fljótir að ná sér eftir mótin og
endurhlaða batteríin. Ég held að
menn séu orðnir afþreyttir eftir
Landsmótin. Ég hef ekki orðið var við
Haraldur Þór Jóhannsson, formaður UMSS.
það að minnsta kosti að menn séu
þreyttir.
Hvernig var undirbúningi háttað
fyrir mótin?
Það voru skipaðar landsmótsnefndir
og síðar ýmsar undirnefndir og
ráðinn framkvæmdastjóri. Lands-
mótsnefndirnar funduðu hálfs-
mánaðarlega.
Hvað með frágang eftir mót?
Frágangur mótanna er enn í gangi,
það er ekki búið að klára ýmsa hluti,
t.d. uppgjör og annað. Það er
ótrúlegt hvað sumir eru seinir að
senda reikninga. Þetta tekur allt
töluverðan tíma og í raun lengri tíma
en maður reiknaði með.
Nú eru skiptar skoðanir um að
halda tvö mót á sama ári, hvað
finnst þér um það að segja að
loknum báðum mótunum ?
Ég er nú sammála því að halda
Unglingalandsmótin árlega og þó
svo að það sé Landsmótsár og þá
verði haldin tvö mót, eins og nú í
sumar. Þetta er bara svo ólíkur
markhópur, og okkur ber skylda til
að bjóða upp á þessi mót sem
valkost fyrir fjölskyldufólk um
verslunamannahelgina.
Hvernig finnst þér það hafi
komið út að bæði mótin voru
haldin á sama stað ?
Já ég geri mér grein fyrir að að verða
alltaf skiptar skoðanir á því. I byrjun
var ég ég sjálfur mjög efins um þetta.
En fyrir mína parta sé ég nú
Frá keppni í gróðursetningu.
hagkvæmnina í því að halda bæði
mótin á sama stað og þetta á að geta
komið mjög vel út fjárhagslega fyrir
mótshaldara að halda bæði mótin,
en það krefst mikillar skipulagningar
og mikið af vinnuframlagi. Ég er
ekkert viss um að það takist alltaf.
Ég veit að það stendur mönnum helst
fyrir þrifum með að halda bæði
mótin á sama stað. Persónulega
held ég að vel hafi tekist til með bæði
mótin. Eins og menn sáðu þá upp-
UMFI - Allir með
6