Skinfaxi - 01.12.2004, Qupperneq 17
FJOLSKYLDAN A FJALLIÐ
Kvöldgöngur
UMSB og
aörar göngur
Fyrsta ganga sumarsins á vegum
UMSB var í vor þegar gengið var
með póstkassa og gestabók á
Varmalækjarmúlann. Leiðsögumenn
í göngunni voru Guðmundur
Sigurðsson UMSB og Steinar Berg
Fossatúni. Varmalækjarmúli er fjall
UMSB í verkefninu "Fjölskyldan á
fjallið".
Opnun verkefnisins "Göngum um
ísland " sem er á vegum UMFÍ var að
þessu sinni hér í Borgarfirðinum.
Gengið var um Jafnaskarðsskóg í
blíðskaparveðri 15. júní sl.
Kvöldgöngur UMSB voru vel sóttar
í sumar og voru að jafnaði 20 - 40
manns sem mættu í göngurnar. Að
þessu sinni var lögð áhersla á
strandlengju Borgarfjarðarhéraðs.
Fyrsta kvöldgangan var um
Hvalfjörðinn, gengið frá Bjarteyjar-
sandi í leiðsögn Arnheiðar Hjörleifs-
dóttur, hálfum mánuði seinna var
gengið um Kampinn og Hvalstöðina í
Hvalfirði leiðsögumaður ferðarinnar
var Matthías Sigurðsson á Hrafna-
björgum. Guðmundur Gíslason
leiddi göngu um iðnaðarsvæði við
Grundartanga í byrjun júlí og 15. júlí
var ganga um Þyrilsnesið, Arnheiður
Hjörleifsdóttir fræddi göngumenn
um umhverfið, fornar vígaslóðir,
fuglalíf o.fl. I lok júlí var gengið um
Grunnafjörðinn, í fylgd Stefáns
Ármannssonar. Björgvin Helgason
var leiðsögumaður þegar gengið var
um strönd Mela í Melasveit 12. ágúst
og Margrét Jónsdóttir leiddi gesti um
strönd Hafnarskógar. Síðasta
kvöldganga sumarsins var um strönd
Rauðaness en þar var Sigurbjörg
Viggósdóttir leiðsögumaður.
í lok göngunnar á Varmalækjar-
múlann bauð leiðsögumaðurinn
Steinar Berg öllum í kaffi að lokinni
göngu. Kunnum við honum og öllum
öðrum sem hönd hafa lagt á plóginn
bestu þakkir.
íþróttamiðstöðin Árbær Bolungarvík
íþróttamiðstöðin er opinn fyrir almenning 0
sem hér segir veturinn 2004 - 2005
Morguntími fyrir almenning í sundlaug
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
• Frá kl 06.00 til kl 10.00
^Síðdegistími fyrir almenning í sundlaug
Mánudaga
• Frá kl 16.00 til 19.00
Aðra virka daga
•Frákl 16.00 til 21.00
Laugardaga opið frá kl. 10.00 til 18.00
Sunnudaga opið frá kl.10.00 til 16.00
Athugiö! Á sunnudögum er sundlaugin sérstaklega
upphituð sem hentar vel ungabörnum og kulsæknu fólki #
Þreksalur
•
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
•Frákl 07.00 til 10.00
og alla virka daga
• Frá kl 12.00 til lokunar sundlaugar
Laugardaga og sunnudaga
• þreksalurinn opinn eins og sundlaug
- A,
*4rbær
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ
BOLUNGARVÍK
^Opnunartími Sauna baðstofu
Á fimmtudögum fyrir konur
• Frá kl 17.00 til 21.00
Á laugardögum fyrir konur
• Frá kl 13.00 til 15.30
Á föstudögum fyrir karla
• Frákl 17.00 til 21.00
Á laugardögum fyrir karla
• Frá kl 15.30 til 18.00
Athygli er vakin á því að Sauna-baðstofan er
opin á sunnudögum fyrir sundlaugargesti.
Netheimar 2004