Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.2004, Page 20

Skinfaxi - 01.12.2004, Page 20
VELFERÐARSJÓÐUR BARNA Ingibjörg Pálmadóttir og Kári Stefánsson stýra Velferðarsjóði íslenskra barna. Sjóður sem hlúir að litla fólkinu Velferðarsjóður barna á Islandi er að verða fimm ára gamall. Hann var stofnaður í febrúar árið 2000 að frumkvæði Kára Stefánssonar og Valgerðar Olafsdóttur í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytið. Stofnfé sjóðsins voru 500 milljónir króna sem komu frá Islenskri erfðagreiningu. I dag hefur sjóðurinn yfir að ráða 6-700 milljónum króna og úthlutar 12% af því fé á hverju ári. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra er framkvæmdastjóri sjóðsins. Ingibjörg og Kári tóku á móti ritstjóra Skinfaxa í höfuð- stöðvum íslenskrar erfðagreiningar. Eftir að hafa rætt um starf og ágæti ungmennafélagshreyfingarinnar og forvarnarverkefni UMFI Blátt áfram sem Velferðarsjóðurinn styrkti með myndarlegum hætti nú fyrir skemmstu, var sest í fundaherbergið og rætt um markmið og verkefni Velferðarsjóðs barna á Islandi. "Hugmyndin að baki sjóðnum var meðal annars sú að þeir sem nytu þessa nýja hagvaxtar í íslensku samfélagi skiluðu einhverju til samfélagsins aftur. Hugmyndin var að setja saman sjóð sem hlúði að litla fólkinu í samfélaginu, sjóð sem leggði sitt af mörkum til að börn fengju jafnt start, " segir Kári. Hann segir að það sé mjög mikilvægt að þeir aðilar sem mynda auð í samfélaginu finni hjá sér löngun, vilja eða þörf til að skila einhverju til baka til samfélagsins og í raun sé það skylda þeirra og ábyrgð. ,,Því miður hefur okkur ekki gengið eins vel og við vildum að fá aðra til að leggja sitt af mörkum. Mér finnst leitt að bankarnir og önnur stór fyrirtæki hafi að vissu leiti brugðist þeirri ábyrgð sem felst í því að fá aðstöðu til að búa til auð í þessu samfélagi. Réttinum til að afla auðs í samfélaginu fylgir ábyrgð og skylda til að skila einhverju til baka," segir Kári Stefánsson. Ingibjörg segir að Islensk erfðagreining hafi komið fram sem ákveðin fyrirmynd með því að standa að stofnun Velferðarsjóðsins og með því að mynda svo öflugan sjóð sé hægt að hugsa um og skipuleggja verkefni langt fram í tímann. Hlúð að velferð barna Markmið Velferðarsjóðsins er að hlúa að hagsmunamálum og velferð barna á íslandi með megináherslu á heilbrigðis-, velferðar- og mennta- mál. Velferðarsjóðurinn hefur staðið fyrir fjölmörgum verkefnum og veitt fjölmarga styrki á undanförnum árum. Rjóður fyrir langveik börn Á heilbrigðissviði er uppbygging Rjóðurs, hjúkrunarheimilis fyrir langveik börn, stærsta verkefni sjóðsins. Rjóður var stofnað í samvinnu við ríkið og opnað síðastliðið sumar. Þar er rými fyrir 1 0 langveik börn í endurhæfingu og aðhlynningu í einu en alls eru um UMFÍ - Þátttaka er lífsstíll 20

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.