Skinfaxi - 01.12.2004, Page 22
VELFERÐARSJÓÐUR BARNA
Það er geysilega mikilvægt að vera í góðu skapi, þá funkera öll okkar líffæri betur,"
segir Kári.
gamlan komma. I framhaldi af því
fer Kóri ó flug í umræðu um Marx og
kapítalisma sem ekki er óstæða til að
fara nónar út í hér.
Allir gáfaðir menn
haltir og með berkla
Kári segir að íslensk ungmenni í dag
séu mjög fínt fólk. Hann segir
umhverfi barna í heiminum í dag sé
að mörgu leiti orðið einsleitt. Eitt af
því sem gerist við sjónvarpið og
tölvuna og allt þetta er að það sé
hætt við því að fólk hætti að hreyfa
sig og verði slappt. „Eitt af því sem
við getum lært frá Bandaríkjunum er
að samþætta íþróttir skólastarfinu.
Þetta er reyndar í miklu betra lagi í
dag en þegar ég var ungur, þá áttu
allir gáfaðir menn að vera líkamlegir
aumingjar og helst að vera haltir og
með berkla eins og Byron. I dag er
þetta sem betur fer breytt. Með
íþróttunum kemur agi og ástæða til
að halda sér ( góðu formi og aga
sinn líkama og sína sál. Ég held að
íþróttirnar séu gott tæki fyrir
krakkana til að stilla sína áttavita."
Rope joga og hafragrautur
„Við höfum verið að leggja áherslu á
það að börnin geti stundað íþróttir.
Kröfurnar eru bara orðnar alltof
miklar og stundum rangar. Til dæmis
er lögð alltof mikil áhersla á flottan
búnað en auðvitað er það leikurinn,
félagsskapurinn og hreyfingin sem
skiptir öllu máli," segir Ingibjörg.
Hún segist núna nýbyrjuð að stunda
rope joga sem felst í því að maður fer
sjálfur í bönd og síðan virkar þetta
sem bandaleikfimi, reipleikfimi, segir
Ingibjörg. „Þetta er svona
konuleikfimi," segir Kári sem er
nýbúinn að kaupa sér nokkra hesta
en telur sig samt ekki hestamann.
"Ég fer í leikfimi einu sinni á dag,
borða hafragraut í morgunmat og
drekk orkudrykki í hádeginu," segir
Kári.
Mikilvægt
að börnum líði vel
Aðspurður um grunn að góðu lífi
segir Kári að það sé hægt að horfa á
þetta líf í alls konar samhengi og
segist allra síst ætla að halda því
fram að hann lifi heilbrigðu lífi. „Við
getum horft á heilbrigt líf í tengslum
við okkar samfélag og hvernig við
getum gert okkar samfélag betra og
ég held að við getum ekkert gert
betra en að reyna að tryggja að
þessum blessuðum börnum líði vel.
Þá gerum við framtíðarsamfélagið
betra," segir Kári
Gott skap mikilvægt
Að lokum eru Kári og Ingibjörg spurð
um lykilinn að góðri heilsu og segist
Kári ekki hafa hugmynd um það.
Ingibjörg gípur þá fram í fyrir honum
og segir að lykilinn að góðri heilsu sé
að vera í góðu skapi. Kári tekur strax
undir það. „Jú það er rétt, það er
geysilega mikilvægt að vera í góðu
skapi, þá funkera öll okkar líffæri
betur, geðvonskan er aðalbölvaldur
mannsins," sagði Kári Stefánsson
forstjóri íslenskrar erfðagreiningar
að lokum.
FULLORÐINSFRÆÐSLAf 65 ÁR
Morgun-, síðdegis- og kvöldnámskeið - fjamám
PRÓFADEILD - ÖLDUNGADEILD
INNRITUN; 7. —12. janúar. Kennsla hefst 17. janúar
ALMENNIR FLOKKAR - FRÍSTUNDANÁM
INNRITLJN: 13.-20.janúar kl. 09 - 21. Kennsla hefst 24.janúar
ÍSLENSKA F\TIIR ÚTLENDINGAj
INNRITUN: 13,-20.januar kl. 09 - 21. Kennsla hefst 24.janúar
Innritun fer firam í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1.
Upplýsingar í síma: 551 2992
Netfang: nfr@,namsflokkar.is - Vefsíða: www.namsflokkar.is
Kennt er í Miðbæjarskólanum og í Mjódd, Þðnglabakka 4.
SYO LENGI LÆRIR SEM LIFIR
UMFI - Allir með
22