Skinfaxi - 01.12.2004, Page 23
AFMÆLI HVATAR
SKINFAXI - tímarit um umhverfismál
Laugardaginn 13. nóvember sl. var
haldið upp á 80 ára afmæli Umf.
Hvatar á Blönduósi og var skipulögð
dagskrá í íþróttamiðstöðinni.
Dagurinn hófst á því að hægt var að
fara í hinar ýmsu knattþrautir sem
knattspyrnudeildin sá um og einnig
að hitta hinn landsfræga knatt-
spyrnumann Eyjólf Sverrisson. Hann
gaf sér einnig góðan tíma til að
spjalla við gesti og svaraði ótal
spurningum áhugasamra knatt-
spyrnuiðkenda á staðnum. Þá voru
Litlu afmælisleikarnir, en í þeim voru
ýmsar þrautir fyrir alla fjölskyldu-
meðlimi. Var árangur skráður á skjöl
með eiginhandaráritunum íþrótta-
fólksins sem heiðraði samkomuna
með nærveru sinni.
Ekki var öll dagskrá tæmd enn í
íþróttamiðstöðinni því klukkan 14
hófst Afmælismót frjálsíþróttadeildar
þar sem keppnisgreinar voru
kúluvarp, langstökk án atrennu og
30 m sprettur. Keppt var í karla- og
kvennaflokki. Arangur á mótinu
verður skráður inn á heimasíðu
USAH, www.usah.is.
Landsliðskonurnar, Islandsmeist-
ararnir og -methafarnir Asdís
Hjálmsdóttir, kastari og Kristín Birna
Ólafsdóttir, tugþrautarkona mættu til
keppni og voru einnig duglegar við
að leiðbeina ungum keppendum.
Klukkan 15 hófst svo kaffisamsæti
í Félagsheimilinu þar sem boðið var
upp á afmælisköku og frábærar
kökur sem foreldrar í Hvöt komu
með færandi hendi. Þangað mættu
margir gestir, meðal annars frá
USAH, KSÍ og UMFÍ, og voru félaginu
færðar ýmsar góðar gjafir. Má segja
að dagurinn hafi tekist vonum framar
og var stjórnarfólk úr Hvöt mjög
ánægt með þátttöku bæjarbúa á
þessum ágæta degi.