Skinfaxi - 01.12.2004, Qupperneq 27
BOLUNGARVÍK
Bolungarvík - Heilsubær á nýrri öld
Fá heilsuverkefni eru rekin jafn
myndarlega og heilsubæjarverkefni
þeirra Bolvíkinga. Því var hleypt af
stokkunum árið 2000 og lifir góðu lífi
í dag. Sigrún Gerða Gísladóttir
hjúkrunarfræðingur við Heilbrigðis-
stofnunina í Bolungarvík stýrir þessu
verkefni og er helsti hugmynda-
fræðingurinn á bak við það.
„í meistaranámi mínu kynntist ég
hugmyndafræði heilsueflingar. Þegar
heim var komið var ég staðráðin í því
að reyna hvort heilsubæjarverkefni í
anda heilsueflingar gæti orðið
vænlegur kostur fyrir sveitarfélög hér
á landi eins og annarsstaðar í
heiminum," segir Sigrún Gerða. Hún
segir Bolungarvík vera ákjósanlegan
stað á margan hátt: „íbúafjöldinn hér
er viðráðanlegur, sjálfstæði bæjarins
er til staðar og hefðir og menning
bæjarins er í föstum skorðum.
Bæjarstjórnin hafði hugrekki til að
taka þátt í þessu þróunarverkefni og
samþykktu að styrkja starfið en gáfu
verkefnisstjórninni frjálsar hendur
með allan undirbúning."
Skipuð var verkefnisstjórn að sögn
Sigrúnar Gerðu sem vann að
undirbúningi í 9 mánuði og á því
tímabili voru haldnir kynningarfundir
fyrir bæjarstjórn og almenning.
Verkefninu var svo formlega ýtt úr
vör 12. febrúar árið 2000. Fyrsta árið
sá verkefnisstjórnin um að fjármagna
með frjálsum framlögum og styrk frá
bæjarstjórn, en í dag nýtur verkefnið
styrkja frá ríki og bæ.
Heilsubærinn hefur staðið fyrir
fjölmörgum verkefnum. Verkefnis-
stjórnin hefur skipt viðburðum niður
á ákveðinn hátt; fjölskyldudagar,
fræðsla og kynning, fyrirlestrar,
gönguferðir, samvinnuverkefni og
önnur verkefni. Auk þess gefur
verkefnisstjórnin út fréttabréf
reglulega sem dreift er til bæjarbúa.
Fræðslan er stór hluti verkefnisins
að sögn Sigrúnar Gerðu: „Við
leggjum aðaláherslu á að fræða fólk,
þannig náum við best markmiðunum
að efla vitund fólks um eigin ábyrgð
á heilsunni og að viðhorfsbreyting
verði gagnvart eigin heilsu. Við
gerðum Gallup-könnun árið 2001
og viðbrögðin voru mjög jákvæð
gagnvart þessu verkefni," segir
Sigrún. Bæjarstjórnin er einnig mjög
ánægð með gang mála ef marka má
ályktun sem hún samþykkti einróma
á fundi sínum á dögunum:
„Bæjarstjórn Bolungarvíkur lýsir yfir
ánægju með störf verkefnisstjórnar
Heilsubæjarins Bolungarvík og þann
árangur sem náðst hefur.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að
verkefnið verði þróað áfram."
Þann 20. nóvember var svo
haldinn stefnumótunarfundur, þar
sem verkefnisstjórn og fulltrúar
félagasamtaka unnu saman að
stefnumótun. Verkefnið var metið í
heild, styrkleiki, veikleiki, hindranir
og möguleikar skoðaðir. Markmið
sett í framhaldinu og leiðir að þeim
skoðaðar. Kannanir voru gerðar
meðal íbúa í tengslum við þessa
vinnu og voru niðurstöður af þeim
mjög jákvæðar. Næst á dagskrá er
síðan að setja framkvæmdaráætlun
til framtíðar."
Það er því Ijóst að þetta blómlega
verkefni verður í fullu fjöri í
framtíðinni. Ánægja íbúanna er mikil
og nágrannar Bolvíkinga hafa litið
öfundaraugum á heilsubæjar-
verkefnið og nú er kominn vísir að
slíku verkefni í ísafjarðarbæ.
Verkefnið hefur ekki aðeins eflt
heilsuvitund íbúa Bolungarvíkur
heldur einnig aukið félagsvitund
þeirra til muna. Það verður því
gaman að fylgjast með þessu
verkefni í framtíðinni.
Karl Jónsson
fyrir Skinfaxa á ísafirði
27
SKINFAXI - tímarit um menningu