Skinfaxi - 01.08.2006, Side 7
Ritstjóraspjall
-Jón Kristján Sigurðsson
Tíminn er dýrmætur
[fyrsta sinn var haldinn Forvarna-
dagur í grunnskólum landsins
þann 28. september sl. undir heit-
inu Taktu þátt! Hvert ár skiptir
máli. Af því tilefni var dagskrá í öll-
um 9. bekkjum grunnskóla og skila-
boð send inn á öll heimili landsins.
Markmið Forvarnadagsins var að
kynna heillaráð sem geta forðað
börnum og unglingum frá þvi að
verða fórnarlömb fíkniefnaneyslu.
Forvarnadagurinn var haldinn að frumkvæði forseta Islands í sam-
starfi við Ungmennafélag íslands, Iþrótta- og Ólympíusamband íslands,
Skátahreyfinguna, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg.
Átakið var stutt myndarlega af lyfjafyrirtækinu Actavis og á fyrirtækið þak-
kir skildar fyrir gott framtak. Svona dagur er nauðsynlegur og vonandi að
hann verði haldinn árlega hér eftir.
Börnin eru það dýrmætasta sem við eigum, við umvefjum þau, veit-
um þeim öryggi og kappkostum að koma þeim til manns. Á þessari göngu
er auðvelt að misstíga sig, foreldrar verða að vera á varðbergi og mega í
raun aldrei sofna á verðinum því að þá getur illa farið. Aðgengi að stór-
hættulegum vímuefnum er mun meira og opnara en áður og sölumenn
þessara efna svífast einskis til að koma þeim að unglingunum. Unglingar
eru vænlegasti markhópurinn fyrir ýmsan varning sem hellist yfir okkur
á hverjum degi i formi auglýsinga og þá ekki síst á Netinu. Eins og heimur-
inn er í dag verða unglingar stöðugt fyrir áreiti með alls konar gylliboðum.
Það getur því verið erfitt fyrir foreldra að feta hinn gullna meðalveg og
finna út hvað er best fyrir barnið.
Tíminn, sem foreldrar verja með börnunum sínum, skiptir miklu máli
en í hinu hraða samfélagi í dag hafa samverustundirnar með börnunum
minnkað. Kröfurnar, sem gerðar eru til alls i dag, taka sinn toll og fyrir vikið
verður tíminn minni eða alls enginn fyrir fjölskylduna að setjast niður og
ræða saman. Það eitt að eiga góðar stundir með börnunum, ræða saman
og taka á vandamálunum getur skipt sköpum. Góð og sterk samskipti á
milli foreldris og barns eru geysilega mikilvæg, þau skaþa öryggiskennd
fyrir báða aðila, þá ekki sístfyrir barnið, sem eflir það og gerir það sterkara
til að takast á við hlutina þegar út í lífið er komið. Foreldrar verða þrátt fyrir
mikið vinnuálag að ætla sér einhvern tíma með börnum sínum. Þetta er
tími sem kemur aldrei til baka, og því er afar brýnt að fara vel með hann
og skipuleggja hann vel.
Iallri umræðunni um unglinga hafa forvarnir líklega aldrei skipt meira
máli en einmitt nú um stundir. Rannsóknir hér innanlands og erlendis
staðfesta að þátttaka barna og unglinga í íþróttum og öðru tómstunda-
starfi er afar mikils virði. Þetta eflir börn og unglinga í alla staði, í námi
og í öðru sem þau taka sér fyrir hendur. Fyrst þátttaka í íþróttum og öðru
tómstundastarfi skiptir svona miklu máli verður aðgengi að þeim að verða
jafnt fyrir alla. Kostnaður barna og unglinga í íþrótta- og tómstundastarfi
getur verið stór biti fyrir fjölskyldu þar sem tekjur eru ekki miklar. Það vita
foreldrar, sem til þekkja, að hafa kannski nokkur börn í íþróttum á sama
tima getur kostað sitt og hefur þessi liður verið að hækka hin síðustu ár.
(þróttir hafa mikið forvarnagildi og þegar upp er staðið hlýtur það
að skipta samfélagið miklu máli. Nokkur sveitarfélög hafa sýnt lofsvert
framtak með því að styrkja þátttöku barna og unglinga i íþróttum með
ákveðinni upphæð. Reykjavíkurborg hyggst á næstunni fara inn á sömu
braut og bjóða hin svokölluðu frístundakort. Það hljóta samt sem áður að
vera sjálfsögð réttindi að börn og unglingar eigi greiða leið til að stunda
íþróttir án tillits til efnahags foreldra og forráðamanna.
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson
Ábyrgðarmaður:
Bjöm B. Jónsson, formaður UMFl
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðs-
son o.fl.
Umbrot/hönnun: Örn Guðnason
Prentun: Prentmet
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: PSN-samskipti og
Gunnar Bender
Ritnefnd: Anna R. Möller
Einar Haraldsson
BirgirGunnlaugsson
Ester Jcnsdóttir
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Fellsmúla 26,
108 Reykjavík, sími: 568-2929,
netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFl:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Valdimar Gunnarsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Torfi Jóhannsson, svæðisfulltrúi með
aðsetur á (safirði,
Guðrún Snorradóttir, verkefnisstjóri
forvarna
Esther Jónsdóttir, ritari,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Þóra Kristinsdóttir, bókhald,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa, kynningar- og upplýsinga-
fulltrúi.
Jón M. (varson, söguritari
Alda Pálsdóttir, verkefnisstjóri vegna
ritunar á sögu UMFl
Stjórn UMFf:
Björn B. Jónsson, formaður
Helga Guðjónsdóttir, varaformaður
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri
Ásdís Helga Bjarnadóttir, ritari
Anna R. Möller
Haraldur Þór Jóhannsson
HringurHreinsson
Jóhann Tryggvason
Einar Jón Geirsson
Einar Haraldsson
Eyrún H. Hlynsdóttir
Forsíðumynd:
Efri myndin er tekin á Unglinga-
landsmótinu á Laugum í sumar af
Þórsstúlkum frá Akureyri.
Neðri myndin er af hressum stelpum
á íþróttadegi Umf. Æskunnar á
Svalbarðseyri.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 7