Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2006, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.08.2006, Blaðsíða 27
Forvarnadagur í grunnskólum: Það má aldrei sofna á verðinum Forvarnadagurinn var haldinn um land allt í grunnskólum 28. septem- ber og voru aðilar, sem skipulögðu daginn, ánægðir hvernig til tókst. Forvarnadagurinn er haldinn að frumkvæði forseta (slands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, (þrótta- og Ólympíusamband (slands, Ungmennafélag (slands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Islands og Háskólann I Reykjavík. Verkefnið er stutt af lyfjafyrir- tækinu Aktavis. Islenskar rannsóknir hafa sýnt að þeir unglingar, sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda (þróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrirfíkniefnum. (þriðja lagi sýna rannsóknirnarfram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðarfíkniefna. Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Islands og Háskólann í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættu- hegðun ungmenna og hafa þær vakið athygli. Við erumalltafátánum I Rimaskóla fór fram kynning á verkefninu fyrir hádegi og virtust nem- endur mjög áhugasamir. Fulltrúar frá skátunum og Fjölni voru á staðnum og kynntu markmiðin þrjú sem lögð er áhersla á, hvert ár skiptir máli, íþrótta- og æskulýðsstarf og samvera. Helgi Árnason, skólastjóri í Rima- skóla, sagði þennan dag áhugaverðan og vonandi upphafið að ein- hverju meiru. Helgi sagði að I sínum huga skiptu samverustundirnar sem foreldrar og börn ættu saman miklu máli. Sterkasta baklandið sem börnin ættu væru foreldarnir. „Ef ég mætti ráða vildi ég sjá svona forvamadag einu sinni í mánuði. f framhaldi af forvarnadeginum ætlum við hér í Rimaskóla að vera með námskeið í formi verkefna og fyrirlestra fyrir nemendur í 9. bekk, undir yfirskriftinni „Hættu áðuren þú byrjar", en að því komu m.a. lögreglan og félagsþjónustan í Grafarvogi og funduðu með krökkunum og foreldrum," sagði Helgi Árnason. - Hefur skólinn lagt mikið upp úr forvarnarstarfi ígegnum tíðina? „Við höfum alltaf reynt að gera það besta í þeim efnum. Við eigum samt erfitt með að fylgjast með krökkunum, því hvað þau eru að gera utan skólatíma. (raun höfum við hvað mestar áhyggjur af þvi hvað þau eru að gera um helgar og í því sambandi heyrum við talað um unglinga- drykkju. Foreldrar og kennarar eru ákveðnar fyrirmyndir, við verðum að sýna krökkunum ákveðinn aga og vera samkvæm sjálfum okkur. Ekki bara vond í dag og síðan allt önnur á morgun. Við verðum að hafa reglur og gildi í gangi þvi að krakkarnir þurfa á aga að halda,"sagði Helgi. Þess má geta að tökur á heimildarmynd um forvarnadaginn fóru fram í nokkrum skólum, þar á meðal í Rimaskóla, og verður myndin vonandi sýnd innan skamms. Umræðunni og baráttunni gegn fíkniefnum lýkursennilega seint. Helgi Árnason sagði engan óhultan þegar þessi efni eru annars vegar. „Þótt barn hafi verið í góðum málum, og hafi verið það í gegnum árin, í góðu samþandi við foreldra sína, hafi stundað nám sitt vel, höfum við séð þessa mynd hrynja í vitleysu og vímuefnanotkun á stuttum tíma. Aldrei má sofna á verðinum og við erum á tánum. Við höfum alltaf reynt að vera í sem nánustu sambandi við foreldra, lögreglu, félagsþjónustu og þess vegna heilsugæslu. Allir þessir þættir verða að vinna saman, enginn má vera útundan,"sagði Helgi. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands 27

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.