Skinfaxi - 01.08.2006, Page 10
Norræn ungmennavika 2006:
Fræðst var um eldgos og eldvirkni,
jarðhita og nýtingu hans, jökla og gufuafl,
hella og gróðurhúsaræktun en auk þess
um landnám íslands og Egils sögu, Reyk-
holt og Snorra Sturluson, Hvanneyri,
sveitastörf (sveitafitness), glímu, íslenska
hestinn og margt fleira.
Á hverju kvöldi sáu þátttakendur
einstakra landa um skemmtiatriði og héldu
kynningar á sínu landi sem og á sínum
félagasamtökum. Fulltrúar UMSB komu
meðal annars og sáu um sundlaugarpartí
sem heppnaðist afar vel. Það voru þreytt
og ánægð ungmenni sem kvöddu Borgar-
fjörðinn - með söknuði!
Líf ogfjörá
Varmalandi
Dagana 9.-16. júlí sl. var haldin norræn
ungmennavika á Varmalandi í Borgar-
firði. Það var Ungmennafélag íslands
sem sá um framkvæmd hennar fyrir
hönd Norrænu ungmennasamtakana.
Ungmennavikan er haldin árlega og er
til skiptis á Norðurlöndunum. Að þessu
sinni komu þátttakendur frá Danmörku,
Suður-Slésvík, Svíþjóð, Grænlandi,
Noregi, Finnlandi og íslandi, samtals
um 90 ungmenni á aldrinum 15-25 ára.
Þema vikunnar var„Orka jarðar".
4
*
11.UNGLINGA
LANDSMÓT
UMFÍ
7 7. Unglingalandsmót UMFÍ 2008:
Þorlákshöfn varð fyrir valinu
Við setningu 9. Unglingalandsmóts Ung-
mennafélags íslands á Laugum 9. ágúst sl.
var tilkynnt hvar mótið yrði haldið 2008. Björn
Bjarndal Jónsson, formaður UMFÍ, tilkynnti í
ræðu sinni að á stjórnarfundi UMFf í júlí hefði
verið ákveðið að Þorlákshöfn yrði fyrir valinu.
Auk Þorlákshafnar sóttu Grundarfjörður og
Borgarnes um að halda umrætt mót.
10. Unglingalandsmótið 2007 verður á Höfn
í Hornafirði á 100 ára afmælisári UMFf.
4
10 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands