Skinfaxi - 01.08.2006, Qupperneq 28
Samkeppni um reyklausan bekk:
Stöndum þétt saman
Samkeppnin um reyklausan bekk heitir Stöndum
þétt saman. Skráning í keppnina Reyklaus bekkur er
nú þegar hafin. Allir 7. og 8. bekkir í landinu geta verið
með, svo fremi að enginn nemandanna reyki. Yfirskrift
keppninnar í ár er Stöndum þétt saman en á heimsvísu
heitir samkeppninni „Smokefree Class Competition".
I ár taka meira en 20 Evrópuþjóðir þátt í keppninni.
Glæsileg verðlaun eru í boði en meðal annars getur
einn bekkur unnið utanlandsferð fyrir bekkinn næsta
vor. Bekkur þarf að skrá sig til leiks fyrir 10. nóvember
2006. Hægt er að skrá bekki á www.lydheilsustod.is.
Viðar Jensson, verkefnisstjóri í tóbaksvörnum hjá
Lýðheilsustöð, hefur séð um keppnina í 8 ár, eða allt frá
því að verkefninu var hleypt af stokkunum. Hann segir
keppnina hafa gengið mjög vel frá upphafi. Á landsvísu
hefur þátttakan verið um 70% að jafnaði og ár hvert
taka um 300 bekkir þátt í keppnini.
„Það eru lagðar nokkrar milljónir í þessa keppni
árlega og í síðustu keppni fengu allir þátttakendurnir
tösku að gjöf. Við drögum síðan út geisladiska og gja-
fapoka en til að eiga möguleika á utanlandsferð í lokin
þurfa þátttakendur að skila verkefni. Sigurvegararnir
frá Vík í Mýrdal í fyrra skiluðu inn mynd sem þau höfðu
unnið. Það er sérstök dómnefnd sem fer yfir bestu verk-
efnin á vorin," segirViðar Jensson.
í upphafi keppninnar skrifar hver nemandi undir
samning þess efnis að hann sé reyklaus. Síðan þurfa
nemendur að staðfesta sex sinnum á vefsíðu yfir
tímabilið að bekkurinn sé reyklaus. Við þetta notum
við ákveðið kerfi sem við höfum þróað en það er okkar
hagur að þau upplifi sig sem ákveðna heild. Viðar segir
þetta mjög vel heppnað verkefni og skólasamfélagið
hafi tekið þessu mjög vel.
- Heldur þú að þetta verkefni sé að skila árangri?
„Já, ég er handviss um það og til lengri tíma litið
vekur þetta þátttakendurtil umhugsunar. Nemendur
eru frjálsir að því hvaða verkefni þau vinna og inn í
keppnina hafa komið mörg frábærlega unnin verkefni
gegn reykingum. Það er líka góð tilfinning fyrir þessa
krakka að upplifa að þau lifa í reyklausri heild. Ég held
að þetta sé með best heppnuðu forvarnaverkefnum
sem við erum að keyra I dag. Þrátt fyrir að ég hef verið
með þetta verkefni í átta ár sé ég alltaf Ijósið," sagði
Viðar Jensson.
BILALEIGA
AKUREYRAR
þínar þarfir - okkar þjónusta.
Bilaleiga Akureyrar er ein elsta og stærsta bilaleiga
landsins með starfsemi á 13 stöðum um allt land.
Bílaflotinn er bæði stór og fjölbreyttur enda ávallt
lögð rik áhersla á gott úrval vel útbúinna bíla
sem uppfylla ýtrustu kröfur viðskiptavina.
Upplýsingar og bókanir í sima 461-6000 6 568-6915 - Afgreiðslutími 08-18 alla daga • Fljótlegt og auðvelt að bóka bíl á www.holdur.is
Reykjavík • Keflavík-FLE • Borgarnes • Ólafsvík • ísafjörður • Sauðárkrókur • Akureyri • Vopnafjörður • Egilsstaðir • Neskaupstaður • Höfn • Vestmannaeyjar • Hveragerði
28 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands