Skinfaxi - 01.05.2007, Side 5
Björn, B.JÓKtwn, jvrnuiðtw UMFÍ:
Gömlu gildin jafnmikilvæg og áður
I' ár eru merk tímamót í sögu Ung-
mennafélags (slands. Hreyfingin
fagnar nú eitt hundrað ára afmæli
sínu og af því tilefni er við hæfi að
líta yfir liðinn veg um leið og lagðar
eru línurtil framtíðar.
Ungmennafélag (slands var
stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907.
Að stofnuninni stóðu hugsjóna-
menn þess tíma, alls staðar að af
landinu, sem sumir höfðu þá þegar
stofnað ungmennafélög í heima-
byggðum sínum. Hreyfingin átti
strax góðan hljómgrunn meðal
fólks í landinu, enda byggði hún á mikilli hugsjón: Að rækta landog lýð.
Enn í dag eru gömlu gildin jafnmikilvæg og áður, þó að kannski hafi
útfærsla sumra þeirra tekið örlitlum breytingum í tímans rás. Ræktun lýðs
og lands, kjörorð ungmennafélagshreyfingarinnar, á ekki síður við í dag en
fyrir hundrað árum. Þau eru mörg verkefnin sem falla undir þetta kjörorð
og nefni ég hér aðeins örfá dæmi:
Gönguverkefni UMFl, Fjölskyldan á fjallið og Göngum um ísland,
skógrækt, ruslahreinsun og önnur umhverfisverkefni, leiklist, söngur, dans
og önnur menningarstarfsemi, auk fjölbreyttrar íþróttastarfsemi fyrir alla
aldurshópa, bæði keppnisíþróttir og almenningsíþróttir, sem sífellt verða
vinsælli um allt land.
Afmælisins verður minnst með ýmsum hætti allt afmælisárið. Gefin
verður út bók um sögu UMFl, en hana ritar Jón ívarsson, sagnfræðingur.
Bókin kemur út á haustdögum. Síðsumars verður hafist handa við að
byggja framtíðarþjónustuhús UMFl í Reykjavík. Sérstakt frímerki, tileinkað
100 ára afmæli Ungmennafélags íslands og því starfi sem þar hefurfarið
fram, hefur verið gefið út. Frímerkið teiknaði Hany Hadaya. Sérstök sögu-
sýning verður í Gerðarsafni í Kópavogi, í tengslum við Landsmót UMFf,
sem haldið verður í Kópavogi dagana 5.-8. júlí nk. Síðan rekur hver stór-
viðburðurinn annan út þetta ár.
Undirbúningur fyrir Landsmót ungmennafélaga stendur nú sem hæst.
Aldrei hefur verið lagt eins mikið í að gera umgjörð mótsins svo glæsilega
sem kostur er. Fjöldi fólks leggur nótt við dag, jafnt í Kópavogi, þar sem
mótið verður haldið, sem úti í félögunum þar sem undirbúningur fer fram
með markvissri þjálfun einstaklinga fyrir keppnina. Setning Landsmótsins
verður hin eiginlega afmælishátíð UMFl. Það er öruggt að allir gera sitt
besta til að gera 25. Landsmót ungmennafélaga að glæsilegu íþrótta- og
menningarmóti á afmælisári UMFl.
Sömu sögu er að segja um Unglingalandsmótið sem verður nú haldið
í tíunda sinn. Hornfirðingar hafa lagt metnað í allan undirbúning á Höfn
og allt stefnir i spennandi og skemmtilegt mót að vanda. Á Höfn verður
hundrað ára afmælis hreyfingarinnar einnig minnst á táknrænan hátt.
(lok október stendur UMFlfyrir alþjóðlegri ráðstefnu íþróttafrétta-
manna í Reykjavík. Reikna má með þátttakendum víða að, en ráðstefnan
er unnin í samvinnu við Play The Game í Danmörku og Félags íþrótta-
fréttamanna á (slandi.
f haust verður þing UMFl haldið á Þingvöllum. Þar munum við minn-
ast stofnunar Ungmennafélags (slands, á þeim stað þar sem upphafið var
fyrirhundraðárum.
Starfið í ungmennafélögunum hefuraldrei verið meira en einmitt nú.
Félögum hefur aldrei fjölgað meira en síðasta áratug, enda þykir ekki síður
flott að vera félagi í UMFl nú en fyrir eitt hundrað árum. Ungmennafélags-
andinn fer aldrei úr tisku.
-fjölskyldumatsölustaður-
Gegn framvísun auglýsingarinnar
fæst 20% afsláttur á meðan
Landsmóti stendur
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 5