Skinfaxi - 01.05.2007, Page 8
Bjöm HevMAAWÁsœn, jraMA^AuemAa&tjóri 25. LomJámaÆ UMPÍ:
Gott starfslið hefur
létt allan undirbúning
„Ég kom til starfa í ársbyrjun 2006 en undirbún-
ingur er í raun búinn að standa miklu lengur.
Þegar ákveðið var að halda Landsmótið I Kópa-
vogi var hafist handa strax og má því segja að
raunverulegur undirbúningur hafi byrjað fyrir
tveimur árum. Það hefur allt gengið eins og í
sögu enda var aðstaðan hér fyrir öll framúrskar-
andi og ein sú besta á landinu. Það var því lítið
um framkvæmdir, aðeins stúkubyggingin og
lagfæringar ýmiss konar," segir Björn Hermanns-
son, framkvæmdastjóri 25. Landsmóts Ung-
mennafélags (slands í Kópavogi.
Björn sagði í mörg horn að líta og að undir-
búningurinn þyrfti mikið skipulag. Hann hefði
gott starfslið með sér og það væri nauðsynlegt.
„Við stefnum að því að þetta verði lang-
stærsta mótið sem haldið hefur verið og ég sé
ekki annað en að það muni ganga eftir. Það er
að mörgu að hyggja en ekkert hefur komið upp
á ennþá sem hefur stöðvað okkur. Öllum hindr-
unumer rutt úr vegi þegar þær blasa við. Við
höfum notið velvildar bæjarfélagsins sem kemur
að mótinu með miklum rausnarskap. Gunnar
Birgisson, bæjarstjóri og formaður landsmóts-
25.LANDSMÓT
UMFÍ
nefndar, hefur haft veg og vanda af flestu því
sem snýr að mótinu og vandað mjög til verka."
- Hvað heldur þúaðmuni standa upp úr á
þessu móti?
„Vonandi öflug þátttaka í öllum landsmóts-
greinum og eins sú nýbreytni að hafa keppni
utan stiga. í almenningsgreinum vonumst við
líka eftirgóðri þátttöku. Vonandi mun líka standa
upp úr góð aðsókn áhorfenda og að þeir njóti
sín vel meðan á mótinu stendur."
- Þetta verður stór helgi i Kópavoginum?
„Það verður hún örugglega og vonandi
munu veðurguðirnir leika við okkur. Við búumst
við miklum fjölda fólks en ég vil ekki nefna
neina tölu í því sambandi. Við höfum ákveðnar
hugmyndir í þeim efnum sem við ætlum að hafa
bara út af fyrir okkur."
- Verður aðstaðan fyrir gesti ekki öll hin
ákjósaniegasta?
„Aðstaðan ertil fýrirmyndar, bæði fyrir kepp-
endur og gesti. Það eiga allir eftir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi. Gistiaðstaða og allt aðgengi
að henni er mjög góð og ég get ekki séð annað en
að öllum þeim sem leggja leið sína á Landsmót
eigi eftir að líða vel hjá okkur," sagði Björn.
- Hvernig hefur það verið fyrir þig að koma að
þessari framkvæmd?
„Þetta erein af stærri áskorunum sem ég hef
tekið. Ég hef nokkra reynslu í þessum efnum og
það hefur hjálpað mér mikið. Það er mjög gaman
að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessum
undirbúningi. Þetta krefst mikillar skipulagning-
ar, ekki má gleyma neinu, og allt verður að vera
undir góðri stjórn. Þetta er mikill skóli sem maður
á eftir að búa að í framtíðinni. Að halda mót sem
þetta væri varla hægt nema að til komi gott
starfsfólk. Við höfum verið mjög heppin í þeim
efnum og það hefur létt allan undirbúning.
Starfsliðið kemur úr félagsmiðstöðvunum í
Kópavogi, allt vant og gott fólk," sagði Björn
Hermannsson, framkvæmdastjóri Landsmótsins
I Kópavogi, í viðtali við Skinfaxa.
8 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands