Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 14
Landsmótin gegna mikilvægu hlutverki
Það er stór ákvörðun að ráðast í að halda Landsmót
UMFÍ en mótshaldarar í Kópavogi voru stórhuga í
upphafi og kalla 25. mótið Risalandsmót. Með
miklum eldmóði, vinnu og færu starfsfólki er þetta
mót senn að verða að veruleika en dagana 5.-8.
júlí verður mótið að stórum hluta haldið á hinu
stórglæsilega íþróttasvæði í Smáralandinu. Fjöldi
fólks hefur komið að undirbúningi mótsins sem er
mjög áhugavert í alla staði enda er dagskráin mjög
metnaðarfull.
Valdimar Leó Friðriksson, formaður UMSK síðastliðin sjö ár, segir
undirbúning hafa gengið mjög vel og að héraðssambandið hafi notið
mikils velvilja bæjaryfirvalda í Kópavogi sem hafi að sjálfsögðu létt undir
með allan undirbúning mótsins.
„Mótið hefur verið þanið út og stefnan frá byrjun hefur verið að gera
betur en sá síðasti. Það er von okkar að vel takist til og mótið verði lands-
mönnum öllum minnistætt. Undirbúningur hefur gengið vel enda var
frábær aðstaða hér fyrir og að auki stór hópur fólks með mikla þekkingu
og reynslu, hver einstaklingur á sínu sviði. Það er því fátt sem hefur valdið
manni áhyggjum," sagði Valdimar Leó í viðtali við Skinfaxa.
- Það hefur létt undir með ykkur að hafa þessa íþróttaaðstöðu sem fyrir
var i Kópavogi.
„Það hjálpar okkur auðvitað, það er engin spurning. Þótt mótin hafi
í gegnum tíðina skilið eftir sig uppbyggingu nýrra mannvirkja þá er það
mikið atriði fyrir keppendur að þekkja þessar aðstæður sem fyrir löngu
eru til. Aðstaðan er hvergi betri en í Kópavogi og þessar aðstæður verða
eflaust aldrei toppaðar. Ef eitthvað verður að veðri verður hægt að fara
með einhver atriði inn í tvö stór knattspyrnuhús en þessa dagana er verið
að opna nýja knatthúsið í Kórahverfi."
- Það hiýtur að vera mikil áskorun fyrir héraðssamband að taka svona
mótað sér.
„Það er það vissulega en þarna getum sagt að við séum að halda
einhver 18 minni mót sem síðan sameinast í Landsmótið sjálft. Þetta mót
lífgar upp á héraðssambandið í heild sinni og þjappar fólkinu saman.
(svona stóru sambandi eins og okkar eru margir sem vita kannski ekki
hver af öðrum en í þessu landsmótsumhverfi verða menn að vinna
saman," sagði Valdimar Leó.
- Hvað eru Landsmótin iþinum huga?
„Tvímælalaust eru Landsmótin stærsta íþrótta- og menningarhátíð
sem haldin er hér á landi. Landsmótin hafa gegnt veigamiklu hlutverki í
gegnum tíðina og munu gera það um ókomna framtíð."
- Hafið þið ekki notið velvilja bæjaryfirvaida i Kópavogi í undirbúningi
fyrir mótið?
„Samstarfið við yfirvöld I bænum hefur verið einstakt og gengið mjög
vel í alla staði. Þetta er stórt sveitarfélag með sérfræðinga á öllum sviðum
sem gott hefur verið að leita til þegar þörf hefur verið á. Bæjaryfirvöld
seinkuðu menningarhátíð til að koma henni inn í dagskrá Landsmótsins
sem setur mikinn brag á þetta Landsmót. Það er lykilatriði að allir í bænum
og bæjarstjórninni vilji taka þátt í þessu með okkur."
- Eigið þið ekki von á miklum mannfjölda á þetta Landsmót?
„Ég reikna með að þetta verði fjölmennasta Landsmótið hingað til.
Við ætlum að reyna að fá yfir tvö þúsund keppendur sem yrði alveg
meiriháttar. Kópavogshlaupið verður tenging inn í Landsmótið ásamt fleiri
greinum því að plássið sem við höfum er það mikið. Ég held að öll þjóðin
muni fylgjast með Landsmótinu með einhverjum hætti, því að það er
haldið á stóru markaðssvæði hvað áhorfendur snertir. Ég myndi halda
svona í fljótu bragði halda að ekki færri en 25 þúsund manns muni leggja
leið sína á mótið. Að jafnaði mæta 10-12 þúsund manns á Landsmót en
við tvöföldum liklega þann fjölda. I mínum huga þýðir þetta mikla
útbreiðslu, annars vegar fýrir Landsmótin og hins vegar fyrir ungmenna-
félagshreyfinguna. Ég er að vona að þessi stóri viðburður í Kópavogi eigi
eftir að hleypa nýju blóði í landsmótshald í framtíðinni. Það eykur vonandi
áhuga styrktaraðila á að koma með enn meiri krafti að þessum stóra við-
burði. Styrktaraðilar komu að þessu móti með mjög myndarlegum hætti,"
sagði Valdimar Leó.
- Spenningurinn fyrir mótinu hlýtur að vera mikill eftir allan undirbún-
ingin sem er að baki?
„Jú, auðvitað. Fólkið, sem kemur að undirbúningnum, er flest með
mikla reynslu og af þeim sökum er óþarfi að vera eitthvað stressaður. Það
er spenna í loftinu en metnaðurinn er ótrúlegur á öllum sviðum. Menn
ætla gera betur en sá á undan þannig að við leggjum miklar kröfur á okkur
sjálf."
Valdimar Leó taldi að nördalandsleikurinn við Svía ætti eftir að hafa
mikið aðdráttarafl hjá almenningi.
„Dagskráin er í heild sinni mjög áhugaverð og fólk mun örugglega
finna mörg áhugaverð atriði," sagði Valdimar Leó Friðriksson, formaður
UMSK, að síðustu.
14 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands