Skinfaxi - 01.05.2007, Blaðsíða 34
fréítír itr IweyjiH^uAWÁ:
JBf Kynningarfundur UMFÍ í Skagafirði
Ungmennafélag íslands hélt kynningar-
fund í Skagafirði 27. apríl sl. Fundurinn
var haldinn á veitingastaðnum Kaffikrók á
Sauðárkróki og var hann ágætlega sóttur
af heimamönnum. UMFÍ kynnti starfsemi
sína og það sem fram undan er en í ár
fagnar UMFÍ100 ára afmæli.
Sæmundur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri UMFÍ, hóf fundinn, kynnti starfsemina
og þá atburði sem blasa við á árinu.
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
hélt tölu um komandi Landsmót í Kópa-
vogi og undirbúning fyrir Unglingalands-
mót á Hornafirði. Ennfremur fór hann yfir
verkefnið Göngum um ísland en Leiðabók
ervæntanleg um mánaðamótin maí-júní.
Jón Kristján Sigurðsson, kynningarfulltrúi,
sagði frá vefsíðum sem UMFl' heldur úti og
Skinfaxa svo að eitthvað sé nefnt. Guðrún
Snorradóttir, verkefnisstjóri Flott án fíknar,
upplýsti gesti um verkefnið.
Alda Pálsdóttir sagði frá ritun sögu
UMFÍ en afmælisritið kemur út í haust.
Anna MargrétTómasdóttir, forstöðu-
maður Ungmenna- og tómstundabúðanna
á Laugum, sagði að búðirnar hefðu gengið
vel í vetur en alls myndu um 1500 nem-
endur sækja búðirnar á þessu skólaári.
Loks upplýsti Ólafur Árnason, forstöðu-
maður verkefnisins Evrópa unga fólksins,
fundargesti um það sem stæði ungu fólki
til boða á þeim vettvangi.
Fundurinn þótti takast vel og er mark-
miðið halda fleiri slíka á landsbyggðinni.
Hið sögufræga mót Skjaldarglíma
Skarphéðins var haldið i 83. sinn á
Hvolsvelli föstudaginn 20. apríl. Stund
um hafa keppendur verið fáir en nú
brá svo við að níu glímukappar áttust
við um Skarphéðinsskjöldinn sem er
veglegur verðlaunagripur frá árinu
1910. Hefur skjaldarglíman ekki verið
svo fjölmenn í 25 ár.
Þegar allir höfðu glímt við alla voru
tveir taplausir, Stefán Geirsson úr Sam-
hyggð og Lárus Kjartansson frá Laug-
dælum. Miklir kraftamenn, stórir og
stæltir, en Lárus öllu þyngri.Tekist var
hraustlega á en að lokum tókst Stefáni
að leggja Lárus á klofbragði og sigraði
þar með í fimmta sinn frá árinu 1999.
Lárus varð annar en faðir hans, Kjartan
Lárusson, nemandi við (þróttakennara-
skólann, nýtti sér reynslu sína og glímu-
færni, þótt kominn sé á sextugsaldur, og
náði þriðja sæti. Hinir sex ungu glímu-
kappar lágu hver um annan þveran á
krækju Kjartans sem vann þarna umtals-
vert afrek.
34 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands