Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 39

Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 39
PrétíTÍv tír fweyjuujuMMÍ: Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2007 voru afhent 15. maí og var það íþrótta- félagið Grótta á Seltjarnarnesi sem hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir samræm- ingu skóladags og æfingatíma í samvinnu við bæjaryfirvöld og Grunnskóla Seltjarn- arness. Formaður Gróttu, Bjarni Torfi Álf- þórsson, veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd samfélagsins á Seltjarnarnesi. Auk foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt tvenn hvatningarverðlaun og ein dugnaðarforkaverðlaun. Hvatningarverðlaun hlaut Reykja- nesbær fyrir að styðja við bakið á foreldra- starfi með veitingu styrks til ráðningar verkefnisstjóra FFGÍR (foreldraráð og for- eldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ). Hvatningarverðlaun hlutu einnig Guð- laug Snorradóttir og starfsfólk Nýbúa- deildar við Hjallaskóla í Kópavogi fyrir óeigingjarnt starf í þágu nýbúa. Dugnaðarforkaverðlaunin hlaut Hlynur Snorrason fyrir forvarnaverkefni í Grunnskólum ísafjarðarbæjar. 31 tilnefning til verðlaunanna barst að þessu sinni og voru 24 verkefni tilnefnd. Á heimasíðu Heimilis og skóla kemur fram að foreldraverðlaunin hafa unnið sér fastan sess í samfélaginu og vekja athygli á þeim mörgu verkefnum sem efla starf grunnskólanna og öflugt og jákvætt sam- starf heimila, skóla sveitarfélaga og samfé- lagsins alls. Aðalmarkmiðið með veitingu Foreldra- verðlaunanna er að vekja athygli á því grós- kumikla starfi sem unnið er á fjölmörgum sviðum ígrunnskólum landsins.Við veit- ingu verðiaunanna er sérstaklega litið til verkefna sem hafa eflt samstarf foreldra og skólastarfsmanna og komið á uppbyggj- andi hefðum í samstarfi þessara aðila. f ár var sérstaklega horft til sveitarfélaga og félagasamtaka sem styðja markvisst við for- eldrasamtök og foreldra í sínu sveitarfélagi. Er það í fyrsta sinn sem það er gert. ► 90 milljónir settar í ferðasjóð ^íþróttafélaga Stjórnvöld ákváðu í vor að koma á fót ferðasjóði íþróttafélaga í samræmi við tillögur nefndar sem menntamálaráðherra fól að fjalla um ferðakostnað íþrótta- félaga. Þetta kemurfram ítilkynn- ingu og þar segir ennfremur: f kjölfar þingsályktunartillögu, sem samþykkt var 3. júní 2006, skipaði menntamálaráðherra nefnd sem falið var að gera úttekt á ferðakostnaði íþróttafélaga vegna þátttöku í viðurkenndum mótum. Þá var nefndinni jafn- framt falið að setja fram tillögur um hvort og þá hvernig skuli komið á fót sérstökum sjóði til að taka þátt í þeim kostnaði. Nefndin var skipuð fulltrúum menntamálaráðherra, fjármála- ráðherra, sveitarfélaga, (þrótta- forystunnar og íþróttafélaga úr öllum landshlutum. Athugun nefndarinnar leiddi í Ijós að ferðakostnaður íþrótta- félaga er mismikill, m.a. af land- fræðilegum ástæðum, og að- gengi þeirra að stuðningi fyrir- tækja og einstaklinga er misjafnt. Við úttekt á ferðakostnaði iþrótta- félaga á viðurkennd mót var stuðst við starfsskýrslur íþrótta- hreyfingarinnar fyrir árið 2005. Leiða má líkur að því að ferða- kostnaður íþróttafélaganna sé allt að 500 m.kr. vegna þátttöku í (slands-, bikar- og meistaramót- um. Af bókfærðum ferðakostnaði félaganna er verulegur hluti vegna ferðalaga félaga utan höfuðborgarsvæðisins. Niðurstaða nefndarinnar var að leggja til að komið verði á fót ferðasjóði íþróttafélaga til að jafna aðstöðumun og efla (þrótta- og forvarnastarf. Jafnframt var lagt til að gerður verði þjónustu- samningur við íþrótta- og Ólympíusamband ísiands um umsjón og umsýslu sjóðsins. Með hliðsjón af áætluðum ferðakostnaði íþróttafélaganna og í Ijósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um þann kostnað félaganna, sem helst er talin ástæða til að jafna, lagði nefndin til að stefnt yrði að því að árlegt framlag ríkissjóðs til ferðasjóðs yrði á bilinu 60-100 m.kr. og að settu marki yrði náð í jöfnum þrepum á þremur árum. Það fyrirkomulag býður upp á að í lok hvers úthlutunarárs verði lagt mat á ávinninginn með hliðsjón af hlutverki sjóðsins og, eftir atvikum, gerðar úrbætur á fyrir- komulaginu á grundvelli ítarlegra gagna sem verða til í tengslum við umsóknar- og úthlutunar- ferlið. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar felur í sér að stefnt verði að því að framlag til sjóðsins verði 90 m.kr. á ársgrundvelli og að því marki verði náð á þremur árum. Framlagið verði þannig 30 m.kr. árið 2007,60 m.kr. árið 2008 og 90 m.kr. árið 2009. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 39

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.