Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 42
Prétíw jrá, vtarji UMBÍ:
Ivrópa unýa fólksim
Heimasíða Evrópa unga fólksins formlega opnuð
Á efri myndinni hefur Karítas Gunnarsdóttir opnað heimasiðu Evrópa unga fólksins. Á neðri myndinni eru
Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, Björn B. Jónsson, formaður UMFl, og Karitas Gunnars-
dóttir, skrifstofustjóri menningarmála I menntamálaráðuneytinu.
Verkefnið
Evrópa unga fólksins,
Youth in Action, var kynnt á
Grand Hóteli í Reykjavík
3. apríl sl. en við það tækifæri
var tekin í notkun ný heima-
síða verkefnisins, www.euf.is.
Um síðustu áramót tók Ungmennafé-
lag íslands að sér að sjá um framkvæmd
með verkefninu. Evrópa unga fólksins er
á ábyrgð menntamálaráðuneytisins en
verkefnið er á ungmennaáætlun Evrópu-
sambandsins sem tók gildi 1. janúar 2007.
Það var Karítas Gunnarsdóttir, skrifstofu-
stjóri menningarmála í menntamálaráðu-
neytinu, sem opnaði heimasíðu Evrópa
unga fólksinsformlega á kynningarfundin-
um.
Ólafur Árnason, sem veitir verkefninu
forstöðu, gerði grein fyrir tilgangi verkefn-
isins og Anna R. Möller, starfsmaður þess,
lýsti verkefninu einnig fyrir gestum á kynn-
ingarfundinum. Björn B. Jónsson, formaður
UMFI, hélt ávarp og lýsti yfir ánægju með
að verkefnið væri komið til UMFÍ og sagði
m.a. að það færði ungu fólki mikla mögu-
leika.
Evrópa unga fólksins, EUF, hefur það að
markmiði að styrkja fjölbreytt verkefni.
EUF leggur áherslu á að styrkja ungmenni
sem á einhvern hátt búa við skerta mögu-
leika. EUF gefur ungu fólki á aldrinum
13-30 ára og samtökum, sem vinna fyrir
ungt fólk, möguleika á þátttöku í ýmsum
samevrópskum verkefnum. Aldur er þó
mismunandi á milli verkefna.
EUF stuðlar einnig að þvi að draga úr
mismunun og stuðlar að jafnrétti á öllum
stigum og í öllum hópum samfélagsins,
eykur skilning á ólíkum aðstæðum og mis-
mun milli landa og stuðlar að viðurkenn-
ingu óformlegrar menntunar. EUF styrkir
frumkvæðisvilja ungs fólks, þróar skilning
þess á því að tilheyra Evrópu (sambandinu)
og hvetur ungt fólk til þátttöku í lýðræðis-
legu starfi, svo að eitthvað sé nefnt.
Einnig má benda á ungmennaskipti þar
sem hópar frá tveimur eða fleiri löndum
hittast og vinna saman að fyrirfram ákveðn-
um verkefnum og læra um samfélög hvers
annars.
Allar nánari upplýsingar er að finna á
heimasiðu Evrópa unga fólksins www.euf.is
42 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands