Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Side 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Side 4
menn vilja vel að gá, sem mönnum þó enn'ekki hefir lærzt að fullu. Hitt mun sanni nær, að það valdi öðru frem- ur óhugnan manna af dauðanum, að hann slítur ættar- og vináttubönd í allar áttir, bönd, sem eru mönnum kær, bæði sakir eðlis þeirra og vana við þau, og að ekki sé þetta sízt svo, þegar bönd þessi eru rofin vofeiflega, viðbúnaðar- og fyrirvaralaust. Þetta er einkar eðlilegt, því menn verða svo fast tengdir tíma sínum og um- hverfi að staðháttum og mönnum, að ógerning- ur má heita að flytja þá þar úr einu í annað. Hið eiginlega umhverfi að mönnum, sem vér lifum í, er svo tiltölulega þröngt og fáliðað, að hver breyting og skerðing á því er alltaf hlut- fallslega mikil og hlýtur að valda mikilli rösk- un, minni, ef þessi skerðing er um stundarsakir, meiri, ef hún er fyrir fullt og allt. Það er nú búið að tala svo margt og mikið um baráttu sjómanna vorra við Ægi, að hér þarf engu við að bæta. Sjómennskan er, sjeð frá bæjardyrum kaldrar hugsunar, venjuleg atvinnugrein, sem er allmjög áhættusamari en margar aðrar atvinnugreinar, og langáhættu- samasta atvinnugrein hérlandsmanna. Það fylg- ir allri vinnu og öllu mannlegu lífi áhætta, mis- jafnlega mikil, eins og segir í sálminum: Ég geng í hættu, hvar ég fer. Maðurinn, sem velur sér sjómennsku að lífs- starfi, hlýtur að þekkja áhættuna, sem henni fylgir, og velur hana samt. Honum getur gengið margt til. í ungum og hraustum mönnum er æfintýraþrá, — angalýja af framtakssemi hins andlega óbæklaða manns, — og fáar stöður eru jafnlíklegar til að leiða menn út í æfintýrið eins og sjómennskan, sem getur teymt menn út um allar álfur. Að því leyti er starfið glæsilegt, og ólíkt glæsilegra en starfið í stórverksmiðjun- um, sem er engu áhættuminna. Þessi þrá mun hjá mörgum verða sterkari en eðlilegur beygur af áhættu, og mannlegt eðli er svo, að menn full- hraustir treysta því alltaf, að þeim hlekkist ekki á. Vér köllum náttúruöflin villt, og það er vafa- laust rangt, því þau hljóta að vinna eftir skorðuðum lögmálum, eins og allt sem vér þekkj- um. En oss sýnast þau vera villt, af því að vér Drukknuðu af m.b. Hjördísi. Friðrik Helgason, háseti. Jón Ólafur Júlíusson, háseti. þekkjum ekki lögmálin, sem þau vinna eftir; því virðast okkur þau starfa reglulaust, og því koma þau alltaf flatt upp á okkur. Náttúruöfl- in eru svo gerð, að þau vilja ekki láta raska eðli sínu og ró, og nær sem mennirnir reyna það, fylgir því megn áhætta. Það er eðli sjáv- arins, að fiskarnir hafizt við í djúpum hans, og það er að raska eðli hans, ef reynt er að svipta þeim þaðan; því er það áhættustaða, bar- áttustaða að vera fiskimaður. Það er barist við eðli náttúrunnar, og nær sem er, kann hún að rísa upp til andstöðu, og er þá ekki að sökum að spyrja, hver betur hafi, öfl eilífðarinnar eða mannlegur veikleiki. I þessari baráttu hafa íslenzkir fiskimenn staðið síðan land byggðist, og þeir hafa orðið að gera það, því þetta land er óbyggilegt, nema landsmenn njóti sjávaraflans. Það má segja, að stundum hafi sjórinn það til að gera gælur við íslendinga, spegilsléttur og fullur f fiski, en stundum hefir hann líka grett sig og hefnt og sogað menn og tæki ofan í djúpið. — Þetta hefir alltaf verið svo hér; sögur vorar, annálar og aðrar heimildir segja oss þetta allt- af upp aftur og aftur, en alltaf hafa íslend- mgar eftir hvert áfallið sent nýja menn og ný tæki út á djúpið. Lengi tekur sjórinn við, og mun alltaf gera það, meðan nokkur Islendingur og nokkur maður leitar út á djúpið eftir fangi. Afhroðið, sem landsmenn bíða, er gífurlegt, og svo, að fróðir menn segja, að það myndi vera VÍKINGUR 4;

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.