Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Qupperneq 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Qupperneq 6
er ekki þess að vænta, að stríðsaðiljar láti oss haldast það uppi að flytja andstæðingum sín- um matbjörg, enda eru þeir búnir að vara skýrt og greinilega við hættunni. Það mannfall, sem orðið hefir í liði íslands á þennan hátt, er ekki af völdum sjávarins, en það gerist á honum, og vér bókum það því í dálka hans. Það hefir hing- að til ekki verið talið að leggja í beina tvísýnu, að fara um sjóinn, og því hafa menn árætt það, en nú er það í bili orðinn beinn lífsháski að sigla skipum vissar leiðir, og sízt er fyrir að synja, að svo fari, að vér íslendingar séum ekki óhultir á þurru landi heldur. Vér vitum, að aðtektum náttúruaflanna verður ekki afstýrt, en hitt skiljum vér ekki, að ekki ætti að mega sefa grimmd og ágengni manna. Þó sjórinn taki lengi við, er hann misjafn- lega djarftækur; stundum hefst hann lítt að eins og hann væri að svæfa varfærni manna, en þess á milli rýkur hann upp og eyrir helzt engu, og það, sem af er þessu ári, hefir hann gerzt oss nærgöngulli en nokkru sinni áður. Frá því um áramót má svo heita, að hrakföllunum hafi ekki linnt. Fyrsta áfallið varð í Vestmannaeyjum 12. janúar. Þá drukknuðu tveir menn, er voru að leggja bát þar á höfninni, þeir: 1. Einar Björnsson, fæddur 15. ágúst 1894. Kvæntur og átti 5 börn. 2. Ingólfur Ólafsson, fæddur 23. janúar 1914, ókvæntur . Næst gerðist það 28. janúar, að 3. Magnús Pálsson stýrimaður á vélbátnum „Vöggur“ féll í skipakví á Englandi og fórst. Hann var fæddur 19. nóv. 1902, kvæntur og átti eitt barn; var þar, auðvitað óbeinlínis, um af- leiðingar ófriðarins að ræða. Tveim dögum síðar, 30. janúar, tekur sjórinn aftur skatt. Þá var vélbáturinn ,,Baldur“ úr Bolungarvík í róðri. Var þann dag versta veð- ur, og hefir ekki til bátsins spurzt síðan, svo að víst er um afdrif hans. Með bátnum fórust: 4. Guömundur Pétursson, formaður, fæddur 11. okt. 1909, ókvæntur og barnlaus. 5. Ólafur Pétursson, bróðir Guðmundar, fædd- ur 14. apríl 1913. Kvæntur og átti eitt barn. 6. Runólfur Hjálmarsson, mágur Ólafs, fædd- ur 14. apríl 1912. Kvæntur, áttti tvö börn. Gullfoss-slysið. Hér birtast mynd- ir af skipverjun- um 19, sem fórust með e. s. Gull- fossi í fúrviðrinu þann 27. og 28. febr. s. I. Finnbogi Kristjánsson, skipstjóri. Indriði Filipusson, 1. vélstjóri. Stefán Hermannsson, 1. stýrimaður. Ólafur Ólafsson, fiskilóðs. Guðlaugur Halldórsson 2. vélstjóri. 7. Óslcar Halldórsson, fæddur 9. sept. 1916. Kvæntur systur þeirra Ólafs og Guðmundar. Er Guðmundar nánar getið á öðrum stao í blaðinu. Hér er höggvið í einn venzlamannahóp; allir hinir látnu eiga aldurhnigna foreldra á lífi. Nóttina milli 30. og 31. janúar, síðari hluta VÍKINGUR 6

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.