Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Síða 7
nætur, reið holskefla á bátinn ,,Pilot“ úr Ytri-
Njarðvík, nokkrar mílur norður af Garðskaga.
Var það þakkað snarræði skipstjórans, Daníels
Ögmundssonar, að báturinn sökk ekki. Tók um
leið út fimm menn af bátnum, og náðust ekki
aftur, nema tveir þeirra; hinir fórust, en það
voru þeir:
8. Hörður Sæmundsson, 2. vélstjóri, 20 ára
gamall.
9. Ólafur Láruson, háseti, 34 ára gamall.
10. Árni Guðjónsson, háseti, 22 ára.
Þetta er óneitanlega mikil blóðtaka, 10 manns
á liðugum hálfum mánuði, auk missis tveggja
skipa. En ólánið átti eftir að herða sig.
Þriðjudaginn 19. febrúar var vonzkuveður á
Vestfjörðum, og var vélbáturinn ,,Hjördís“ frá
ísafirði þá á sjó. Fékk báturinn á sig brotsjó
í óveðrinu og tók út 3 bátverja. Einum tókst að
bjarga, en hinir fórust, þeir:
11. Jón Ólafur Júlíusson, háseti, 30 ára;
lætur eftir sig konu og tvö börn.
12. Friðrik Helgason, háseti, 26 ára. Ókvænt-
ur, en var fyrirvinna aldraðra foreldra.
Mesta ofviðri, sem komið hefir hér á landi
um margra ára skeið, geysaði 27. og 28. feb-
rúar. Var ofsinn mikill um land allt, en mestur
þó við Faxaflóa, og mældist þar veðurhæðin 12
stig, þegar hvassast var aðfaranótt þess 28. —
Skipskaðar og skipsströnd urðu víða, en mest
við Faxaflóa, og sérstaklega í Keflavík. Er
ærin eftirsjá í skipum, en það var ekki ein báran
stök, því ofan á það bættist, að 25 menn fórust.
Vélbáturinn „Hjörtur Pétursson“ reri um þess-
ar mundir. Miðvikudaginn 26. fór hann í róð-
ur, og fórst hann með allri áhöfn, að talið er
fimmtudaginn 27., undan Garði. Hinir látnu
eru:
13. Eirílcur Þorvaldsson, formaður; kvæntur
og þriggja barna faðir, ungra.
14. Unnar Hávarðsson, stýrimaður; ókvænt-
ur.
15. Helgi Oddsson, vélarmaður; ókvæntur.
16. Andrés Ágústsson, háseti. Lætur eftir sig
konu og eitt barn.
17. Vilctor Knudsen, háseti; ókvæntur.
18. Jón Stefánsson, háseti. Kvæntur; átti eitt
barn.
í sama ofviðrinu fórst togarinn „Gullfoss“;
Böðvar Jónsson,
háseti.
Magnús Guðbjartsson,
matsveinn.
Hans Sigurbjörnsson,
bræðslumaður.
Jón Stefánsson,
háseti.
Vilhjálmur Jónsson,
háseti.
Maron Einarsson,
kyndari.
Sigurður Egilsson,
kyndari.
Magnús þorvarðsson,
háseti.
7.
VIKINGUR