Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 16
1. /2. í skjaldarglímu Ármanns í
gærkveldi varð Kjartan B. Guð-
jónsson sigurvegari.
*
2. /2. íþróttasamband íslands
minntist 25 ára afmælis síns moð
fjölbreyttri skemmtun í Iðnó.
*
3. /2. Gefið út opið bréf á ráðu-
neytisfundi, um að Alþingi skuli
koma saman 15. þ. m.
*
4. /2.Við skráningu atvinnuleys-
ingja í Reykjavík létu aðeins 24
menn skrá sig. Á sama tíma í
fyrra voru þeir 553.
*
5. /2. Vestfirðingar eru almennt
hættir róðrum vegna tundurdufla-
hættu á miðunum.
*
Færeyskt fiskiskip, „King Art-
hur“, sem lá undir Voga-Stapa,
sleit upp og rak í land. Brotnaði
það í spón.
*
6. /2. Við könnun í skólum
Reykjavíkur kom í ljós, að 12—
33% nemenda vantaði i skólana
vegna inflúerizufaraldursins í
bænum. Rætt um lokun skólanna.
*
Áei'kfall loftskeytamanna á tog-
urum hófst á hádegi, en kl. 6 e. h.
var verkfallinu aflétt, því að þá
höfðu samningar náðzt.
*
7. /2. Samkomubann sett á í
Reykjavík og I-Iafnarfirði og skól-
um lokað vegna inflúensufarald-
ursins.
*
Maður að nafni Davíð Sigurðs-
son járnsmiður fannst í húsagarði
í Reykjavík mikið særður, með
brotna höfuðkúpu og meðvitund-
arlaus. Ókunnugt um með hvaða
liætti hann hefir hlotið áverk-
ana.
*
8. /2. Sakadómari sýknaði Sig-
urð Benediktsson póstmann af
landráðaákæru herstjórnarinnar
brezku.
*
Flugvélin TF Örn fann mótor-
bátinn „Tjaldur", sem farið hafði
í róður frá Vestmannaeyjum dag-
inn áður og ekki náð landi. Sótti
varðskipið Ægir bátinn að til-
vísun flugvélarinnar.
*
9. /2. þýzk sprengjuflugvél flaug
yfir Selfoss, Reykjavík og víða
yfir Reykjanesskaga kl. 11—12
um morguninn. Ekki varpaði flug-
vélin niður sprengjum, en skaut
úr vélbyssum á hermannaskál-
ana við Ölfusárbrú. Tveir setu-
liðsmenn særðust. Skotið var á
flugvélina úr loftvarnabyssum, en
hún slapp við skotin.
*
í bílslysi, sem varð skammt
fyrir ofan Baldurshaga í Mosfells-
sveit, i>eið unglingspiltur úr
Reykjavík, Guðmundur Eiríksson
að nafni, bana, en annar piltur
hlaut stórmeiðsl.
*
Sprakk tundurdufl í fjörunni
við bæinn Hurðarbak á Melrakka-
sléttu. Slys varð ekki af.
*
10. /2. Andaðist Davíð Sigurðs-
son járnsmiður, sá, sem fannst
meðvitundarlaus í húsagarði í
Reykjavík þ. 7. þ. m.
*
12./2. Upplýst að ríkisstjórnin
hafi yfir að ráða rúmum 5 milj.
króna, sem Bretar hafa greitt og
verja á til uppbótar á þær út-
flutningsvörur, sem harðast vel'ða
úti vegna styrjaldarinnar.
#
14./2. Firnmtugur Friðrik J.
Rafnar vígsluhiskup á Akureyri.
*
Strandaði belgiskui' togari, „Ge-
orge Edward" á Bólhraunsfjöru á
Mýrdalssandi. — Sjö skipverjar
björguðust í land, einn fórst, en
þríi' urðu úti á sandinum, áður
en þeir næðu til byggða.
*
15./2. Alþingi íslendinga sett.
*
17. /2. Andaðist ísólfur Pálsson
tónskáld.
*
18. /2. Samkomubannið í Reykja-
vík og Hafnarfirði upphafið.
*
20./2. Drukknuðu 2 menn af vél
bátnum „Hjördís" frá ísafirði. —
Báturinn var í fiskiróðri og tók 3
menn út af honum, en einum
þeirra tókst að bjarga.
*
Tvö tundurdufl rak á land á
Ströndum.
*
22./2. Yfirforingi Finna í frelsis-
str'iði þeirra í fyrra vetur hefir
sent íslenzku þjóðinni þakkar-
bréf fyrir þá hjálp, er hún lét
Finnum þá í té.
#
26-/2. Stórbruni varð á Borðeyri.
Brunnu verzlunarhús kaupfélags-
ins, sláturhús þess og eitt stórt
íbúðarhús.
*
27./2. Geysaði norðaústan of-
viðri um Suðurland. í veðrinu
rak 2 vélháta á land í Keflavík og
brotnuðu þeir báðir í spón. Erlent
flutningaskip rak á land við Sjáv-
arborg í Reykjavík. — Óttast að
veðrið hafi valdið miklu tjóni og
slysum á skipum í Faxaflóa, en
frekari fregnir ekki fyrir hendi.
V í K 1 N G U R
16
I