Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Síða 23
Hin skoðunin, sem var borin fram af sjó-
mönnum utan af landi, var sú, að námskeið eða
skólar yrðu settir á stofn úti um land, er veittu
all frekari réttindi en áður voru, eða skipstjóra-
réttindi á fiskiskipum allt að 200 rúml., en
kennsla yrði aukin frá því sem áður var, eftir
því sem nauðsynlegt þætti af sérfróðum mönn-
um þar um. Með öðrum orðum, að sjómanna-
stéttin fengi sína sérskóla úti um land, á sama
hátt og aðrar stéttir þjóðfélagsins. Endirinn
varð svo sá, að námskeið úti um land voru lög-
fest, en réttindi er þau veita aukin úr 60 upp í
75 rúml. Kennsla í siglingarfræði var nokkuð
aukin frá því sem áður var.
Á sama tíma voru þau inntökuskilyrði sett
við Stýrimannaskólann, meðal annarra, að við-
komandi þyrfti að hafa siglt sem háseti í 18
mánuði á skipi yfir 75 rúml. Þótt einhverjar
undanþágur hafi kannske verið veittar á þessu
atriði, nær svona ákvæði vitaskuld ekki nokk-
urri átt. Maður, sem búinn er að vera fleiri
ár skipstjóri á skipi undir 75 rtSml., er ekki
hæfur að komast inn í Stýrimannaskólann nema
með einhverskonar undanþáguákvæðum.
Ef athugaður er fiskiskipastóll landsmanna,
sést, að einungis um 70 fiskiskip á landinu eru
yfir 75 rúml. og þau flest af Suðurlandi, en
önnur smærri skip um eða yfir 500 talsins.
Sömuleiðis ber að athuga það, að flest hinna
stærri skipa, að undanskildum togurum, hafa
ekki verið gerð út nema um 2 mánuði ársins,
allt fram til síðustu tíma.
Erfiðleikarnir á því að komast inn í Stýri-
mannaskólann eru með þessu gerðir svo miklir.
að nærri má telja sem útilokun fyrir meiri-
hluta sjómanna þeirra, er utan höfuðstaðarins
búa, og það ekki sízt, þegar heita má, að til
þess að komast sem háseti á eitthvað hinna
stærri skipa, þurfi annaðhvort mægðir eða sér-
stakan kunningsskap við málsmetandi menn
hvers útgerðarfyrirtækis.
Þessum útilokunarákvæðum skólans þarf
skilyrðislaust að breyta, svo skólinn geti orðið
skóli stéttarinnar, en ekki forréttinda skóli
nokkurs hluta hennar. Inntökuskilyrði skólans
þurfa á hverjum tíma að vera sniðin eftir þeim
skipastól, sem sjómenn landsins hafa við að búa
í hvert sinn.
Verði á yfirstandandi Alþingi samþykkt að
byggj a nýjan sjómannaskóla, geri ég ráð fyrir
að á ný muni koma fram krafa um það, að
fiskiskipstjóraprófið verði aðeins eitt, og þá
tekið í Reykjavík. Eru þá orðnar stórum breytt-
ar aðstæður fyrir sjómenn utan af landi, þar
sem um fullkominn heimavistarskóla væri að
ræða, og aðstæður þeirra til skólasóknar stór-
um bættar.
En nú er það Alþingis að svara því, hvers
það metur sjómannastétt landsins. Hvort hin
gullvægu orð eru meint sem meiningarlaust
hjal eða ekki.
Þessir þingmenn þjóðarinnar eiga nú innan
skamms að fara að leita að mati þjóðarinnar á
verkum sínum. Þess vegna mun sjómannastétt-
in nú fylgjast vel með gerðum þeirra í þessu
máli, og á sínum tíma launa þeim eftir verkum
þeirra.
Sv. Þorsteinsson.
S j 6 m e n ri!
Sendið Víkingnum til byrtingar stuttar og laggóðar greinar eða
kvæði um daglega lífið á sjónum, eða myndir úr sjómannalífinu
fyr og nú.
Munið jafnan að Ví kingurinn er ykkar blað!
23
VÍKINGUR