Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Side 24
MINNINGARORÐ UM
GUÐMUND PÉTURSSON
OG SKIPVERJA HANS
Guðmundur Pétursson, formaður á m.b. Bald-
ur fi'á Bolungarvík, fór á sjó miðvikudags-
kvöldið 29. janúar síðastliðinn og fórst 30. jan-
úar. Á bátnum voru þessir menn, auk formanns-
ins: Ólafur Pétursson vélamaður, bróðir Guð-
mundar, 27 ára gamall, og lætur hann eftir sig
konu með tveimur börnum. Runólfur Hjálmars-
son háseti, 28 ára, lætur eftir sig konu og eitt
barn. Hann var mágur Ólafs. Óskar Halldórs-
son háseti, 24 ára gamall, lætur eftir sig konu
og eitt barn. Hann var giftur systur Guðmund-
ar og Ólafs. Allt voru þetta menn á bezta aldri,
góðir sjómenn og drengir góðir.
Guðmundur Pétursson var 31 árs að aldri,
fæddur í Bolungarvík 11. október 1909. Foreldr-
ar hans eru Pétur Ólafsson bóndi í Bolungarvík
og Þorsteina Guðmundsdóttir, sem bæði eru á
lífi. Guðmundur heitinn byrjaði sjómennsku
strax eftir fermingu og var við sjó jafnan síð-
an. Hann sótti sjómannanámskeið á ísafirði
1933 og lauk þar prófi með beztu einkunn. Ár-
ið 1934 kom ég að máli við Guðmund og spurði
hann, hvort hann langaði ekki til að eignast
nýjan bát, vel útbúinn og eins stóran og hægt
M.s. Baldur, ÍS 6.
væri að hafa hér í Bolungarvík. Hann tók þessu
strax vel, þó að ekki væri um það leyti glæsi-
legt að stofna til útgerðar. Báturinn var svo
byggður á árinu 1935, og mun Guðmundur heit-
inn hafa lagt í hann það fé, er hann til þess
tíma hafði sparað saman. Öll árin frá 1935 til
1939 voru afar erfið fyrir smáútgerð og hallaði
stöðugt undan, en alltaf var jafmnikill áhugi
og dugnaður Guðmundar og óbifanleg sannfær-
ing hans um að brátt færi að ganga betur.
Árið 1939 urðu snögg umskipti, verðlag á
fiski hækkaði og afli var góður og allt atvinnu-
líf Bolungarvíkur komst í gott horf.
Framtaki þessa unga manns og annarra, er
fetað hafa í fótspor hans og orðið hafa honum
samferða, áttum við Bolvíkingar fyrst og
fremst að þakka, að við vorum sæmilega út-
búnir með skipakost, þegar viðhorfið breyttist.
Guðmundur heitinn var ávallt í fremstu röð
formanna hér og fékk hann um 1300 króna
Guðmundur Pétursson formaðui'.
Ólafur M. Pétursson.
Óskar Halldórsson.
Runólfur HjAlmarsson.
24
VIKINGUR