Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Síða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Síða 7
CARL OLSSON: Baráffan við kafbáfana á Biscaya-flóa Á svæðinu frá Scilly-eyjunum til Spánar- stranda, og þaðan vestur og út í Atlantshafið, er háð orusta, sem örlög bandaþjóðanna velta á. — Það er þrotlaus barátta, sem háð er nótt og dag, og aldrei er slakað á klónni, hvernig sem viðrar og hvort sem lánið er með eða móti. Það er baráttan við kafbátana á Biscayafló- anum. Eftir fall Frakklands haustið 1940, létu Þjóðverjar það vera sitt fyrsta verk að notfæra sér Atlantshafsströnd Frakklands til að koma þar upp stórkostlegum bækistöðvum fyrir kaf- bátaflota sinn. Á allri strandlengjunni frá Cherbourg til Bordeaux, í ótal höfnum, stórum og smáum, tóku þeir að byggja mikla og ramgera stein- steypuhella, sem hæli fyrir kafbátana. Þökin á þessum hellum eru margir metrar á þykkt og þar á fá engar sprengjur unnið á. Meðan á þessu gekk, voru þeir í Þýzkalandi að hleypa af stokkunum nýrri tegund af kaf- bátum, sem voru svo rammbyggðir, að þeir gátu stungið sér niður á hundrað faðma dýpi, sem var helmingi neðar en hin banvænu áhrif djúpsprengjanna náðu, þeir voru útbúnir alveg nýrri tegund af vélum, svo sparneytnum og hentugum, að jafnvel hinir minnstu þeirra gátu farið fram og aftur yfir Atlantshafið, án þess að þurfa að óttast eldsneytisskort. Þessir kafbátar voru þannig gerðir, að hægt var að flytja þá í smápörtum með járnbraut- um til Frakklands, þar sem þeir voru settir saman. Meðan verið var að byggja kafbátahellana, smíða kafbátana og setja þá saman í Frakk- landi, voru brezku strandvarnaflugvélarnar smátt og smátt að vinna á í orrustunni um Atlantshafið. Kafbátarnir voru þá vanir að koma frá Þýzkalandi eftir norðurleiðinni — meðfram norsku ströndinni. Smátt og smátt var þeim bægt lengra og lengra út á hafið — burt frá ströndinni og hinum fjölförnu skipaleiðum. Þá kom árásin á Pearl Harbour. Hellarnir fyrir botni Biscayaflóans voru þá tilbúnir að hýsa neðansjávar drápvargana. En enginn, og allra sízt í Ameríku, gaf þessu gaum, fyr en Þjóðverjar tilkynntu, að þeir höfðu á skömm- um tíma sökkt tvö hundruð skipum við strend- ur ameríku. Ameríkumenn höfðu ekki undirbúið neinar varnir gegn kafbátum. Eitthvað varð að gera. Bromet, vára-mar- skálkur í flugliðinu skrapp til Ameríku til skrafs og ráðagerða við yfirvöld Bandaríkjanna Þeir komust að þeirri niðurstöðu, að flestar kafbátahjarðirnar sem herjuðu við strendur Ameríku, kæmu frá höfnum við Biscayaflóann. Það varð því útfallið, að strandvarnarflug- liðið brezka yrði látið bæta á sig gæzlunni í Biscayaflóanum, ofan á gæzluna í Norðursjón- um, norður Atlantshafinu og siglingaleiðinni til Murmansk. Þar með hófst hin sífellda ref- skák milli kafbátaáhafnanna og mannanna í flugvélunum, sem sátu um þá í loftinu. Flugvélarnar reyndu að geta sér til um allar hreyfingar kafbátanna fyrirfram, forsjálni og skarpskyggni hafði mikið að segja í þessari baráttu í Biscayaflóanum. Það var vitað hvar bækistöðvar kafbátanna voru, og hvað þeir gátu haldið sér lengi í kafi í einu. Allur flóinn var nákvæmlega kortlagður, og var reynt að geta sér til hvar kafbátarnir mundu leggja leið sína um hann fram og til baka. Því fleiri flugvélar, sem hægt var að setja í leitina, því fleiri kafbáta var hægt að koma auga á. Nætur-sprengjuflugvélar voru sendar út, svo sem Whitleys og Wellingtons, málaðai' hvítar, til þess að þær líktust sem mest ljósum ský- hnoðrum, og tóku þær upp baráttuna við hlið- ina á Sunderlands, Catalinas og Hudsons flug- bátunum, sem hingað til höfðu orðið að bera hita og þunga eltingarleiksins. VlKINGUR 7

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.