Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Blaðsíða 26
betur en forvígismönnum hans hafði tekizt með hin- um luktu hringrásum sínum. Það var á heimili foreldra sinna í Bologna á ít- alíu, sem Marconi gerði fyrstu tilraunir sínar í þessum efnum árið 1895. Síðar flutti hann til Eng- lands og fékk þar einkaleyfi í fyrsta sinn á hinum nýju tækjum 1896. Áhöldin voru fyrst í stað afar veik, en styrkur þeirra fór vaxandi og að ári liðnu, frá því að gerð- ar voru fyrstu tilraunirnar í Bologna, var lang- drægi þeirra orðið 10 kvartmílur, miðað við að sent væri yfir sjó eða flatlendi. Eftir fjögur ár drógu Loftskeytatæki notað í fyrsta sinn um borð í skipi í sjávarháska 3. marz 1899. tækin orðið 200 mílur. Sem öryggistæki sjófarenda fengu þau eldvíxlu sína árið 1899. í desember árið áður höfðu loftskeytatæki verið sett í vitaskipið á East Godwin-grynningunum, við suðausturströnd- Englands, lítil og fábrotin tæki. Þriðja marz árið 1899 varð vitaskipið fyrir alvar- legum skemmdum, er siglt var á það af öðru skipi, og í fyrsta sinn frá því að sögur hófust, var hjálp- arbeiðni send frá skipi í hafsnauð, með aðstoð loft- skeytatækja. Dráttarbátar komu á slysstaðinn og drógu vitaskipið til lands. Fimmtudaginn 12. desember árið 1901 tókst að senda yfir Atlantshafið — frá Cornwall á Englandi til Nýfundnalands í Norður-Ameríku — fyrstu loft- skeytamerkin — bókstafinn S. Má telja það í raun og veru frábært þrekvirki, þegar miðað er við þau móttökutæki, sem þá voru notuð, „segul“-detektor- inn svonefnda, sem ýmsir hinna eldri loftskeyta- 26 Sendistöð Poulsens í Lyngby. Með tækjum þessum náðist talsamband við Esbjerg árið 1907 (240 km. vegalengd). sóknir hans höfðu sannað, að venjulegt bogaljós sendi frá sér jafnöldur (CW), ef þéttir og spankefli, af hæfilegri stærð, voru tengd samhliða yfir ljós- bogann. Með uppgötvun þessari opnuðust nýjir möguleik- VÍKINGUR manna munu kannast við. Það var sú tegund við- tækja, sem var í fyrstu íslenzku skipunum, sem loftskeytatæki voru sett í, skipum Eimskipafélags íslands. Þau tæki var þó einnig hægt að nota sem venjuleg krystalviðtæki, en krystal-viðtækin voru fundin upp í Ameríku árið 1906. E.s. Goðafoss fékk loftskeytatæki fyrstur íslenzkra skipa árið 1915. Varatækin voru af þessari gerð. Fyrstu loftskeytatækin fyrir jafnöldur (ljósboga- sendirinn, voru fundin upp árið 1902, af danska vís- indamanninum Valdemar Poulsen. Byggði hann upp- götvun sína á athugunum, sem gerðar höfðu verið árið 1899, af Englendingnum W. Dudell, en rann-

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.